18.05.1921
Efri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1491 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)
7. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Karl Einarsson:
Jeg vil leggja minni áherslu á muninn á milli hlutafjelaga og einstakra manna en háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) gerði.
Því að jeg tel enga ástæðu til þess að taka vægt á hlutafjelögum yfirleitt, en hjer eiga botnvörpungafjelögin í hlut. Jeg álít, að hjer sje of langt gengið. Um tekjuaukann af frv. þessu er jeg ekki sammála hv. 2. landsk. þm. (S. E.) og jeg hygg, að ef lausafjárskatturinn, tekjuskatturinn og húsaskatturinn væru látnir standa, þá mætti þetta frv. bíða.