04.03.1921
Efri deild: 14. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

43. mál, sendiherra í Kaupmannahöfn

Forsætisráðherra (J.M.):

Það er ekki ætlan mín að vekja hjer umr. um þetta mál. Jeg skal að eins láta þess getið, að frv. þetta hefir verið borið fram í Nd. og samþykt þar. Er jeg mjög vel ánægður með þær viðtökur, sem það hefir fengið, og vænti jeg, að það gangi til allshn.