06.05.1921
Neðri deild: 63. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í B-deild Alþingistíðinda. (1401)

11. mál, stimpilgjald

Jón Þorláksson:

Það er aðeins örstutt fyrirspurn til háttv. fjhn. viðvíkjandi 2. brtt. hennar. Úr því hún telur hlutafjelög svo langlíf, að þau þess vegna eigi að borga tvöfalt stimpilgjald, hvers vegna undanskilur hún þá samvinnufjelögin? Mjer finst kenna þarna nokkurrar hlutdrægni gagnvart hlutafjelögum.