06.05.1921
Neðri deild: 63. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1510 í B-deild Alþingistíðinda. (1402)
11. mál, stimpilgjald
Frsm. (Jakob Möller):
Jeg skal fúslega játa, að þetta er af vangá hvað mig snertir. En þessi brtt., eins og hún er þarna orðuð, er framkomin samkvæmt till. þess manns (Jóns Krabbe), er stjórnin hefir mest eftir farið í þessu máli. En jeg viðurkenni, að ákvæði þetta ætti eins að gilda um öll önnur fjelög, og er jeg fús á að flytja brtt. í þá átt við 3. umr., og treysti háttv. deild, að hún geri það ekki að ágreiningsatriði, því að slíkt samræmi í frv. virðist á fullkomnum rökum bygt.