09.05.1921
Neðri deild: 65. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

11. mál, stimpilgjald

Frsm. (Jakob Möller):

Jeg þarf fyrir hönd fjhn. aðeins að taka það fram, að nefndin sá ekki ástæðu til að koma fram með neinar brtt. við frv. við þessa umr., þó að svo væri hálft í hvoru ráðgert, að því er tvö atriði snerti. Því verður að vísu ekki neitað, að stimpilgjald af sjóvátryggingarskírteinum er töluvert hærra samkv. þessu frv. en t. d. í Danmörku. Samkvæmt frv. er það 10 aurar af hverju þúsundi, en í Danmörku 25 aurar af hverjum 6 þús., eða rúmlega helmingi lægra. Gæti þetta ef til vill haft þýðingu í samkepni milli innlendra og erlendra fjelaga, en þó er hjer ekki um neinn verulegan mun að ræða, svo að tilfinnanlegur verði fyrir vátryggjendur. En nefndin ætlast til þess, að stjórnin noti þá heimildina, sem henni er gefin, til þess að fella niður gjaldið eða gefa eftir af því, ef henni virðist þess við þurfa.

Um tvöföldunina af stimpilgjaldi af afsölum fasteigna, sem seld eru fjelögum, er það að segja, að mjer fyrir mitt leyti virðist fult svo mikil ástæða til að láta það ná einnig til samvinnufjelaga, ekki síður en til hlutafjelaga, svo sem minst var á við 2. umræðu. Einstakar fasteignir slíkra fjelaga geta gengið kaupum og sölum, án þess að aðaleignirnar skifti um eigendur, og ætti þá það sama að gilda í báðum tilfellum. Aðaleignir hlutafjelaga skifta vitanlega venjulega ekki um eigendur á annan hátt en þann, að hlutabrjefin sjeu seld, en til samvinnufjelaganna er þannig stofnað, að þau verða ekki talin síður „stabil“. Jeg hefi þó ekki sjeð það til neins að koma með brtt. hjer að lútandi. Hygg jeg, að hún mundi lítinn byr fá í þessari hv. deild, enda er hjer ekki um að ræða svo verulegt atriði, að miklu skifti um það, hvernig því er skipað.