10.05.1921
Efri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)
11. mál, stimpilgjald
Fjármálaráðherra (M. G.):
Eins og kunnugt er, kom það til mála í háttv. Nd. að framlengja stimpilgjaldslögin óbreytt og þar með 1% stimpilgjald af útfluttum vörum. En háttv. fjhn. þeirrar deildar fjelst á, að það mundi vera verra, því að í þessu frv. eru ýms skjöl stimpilskyld, sem ekki voru það áður, og nemur það eftir áætlun um 150–200 þús. kr. tekjuauka á ári.
Jeg get fullyrt, að frv. er vel undirbúið. Umboðsmaður okkar í Kaupmannahöfn, J. Krabbe, hefir lesið frv. yfir og gert lítilfjörlegar athugasemdir við það, og voru þær teknar til greina í háttv. Nd., eins og sjá má á brjefi frá honum.