12.05.1921
Neðri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
45. mál, Sogsfossarnir
Þorleifur Jónsson:
Jeg hafði og hefi enn ýmislegt að athuga við frv. það, er fyrir liggur, um heimild handa landsstjórninni til framkvæmda á rannsóknum Sogsfossanna. Mjer finst vera farið dálítið öfugt að í þessu máli. Fyrsta sporið, sem stíga verður, er það, að landið nái yfirráðarjetti yfir Soginu. En nu er það útlent fjelag, fossafjelagið „Ísland“, sem telur sig hafa umráðarjettinn að mestu leyti. Alþingi 1919 hafði og þá skoðun, að það fyrsta, sem bæri að gera í þessu máli, væri það, að ríkið næði fullum umráðarjetti yfir Soginu. Þá var samþ. þál., þar sem skorað var á stjórnina að ná yfirráðarjettinum sem fyrst. Nú hefir ekkert áunnist í málinu síðan. Það eina, sem gert hefir verið, er það, að stjórnin hefir leitað samninga við fossafjelagið „Ísland“ um kaup á rjettindum yfir vatnsfallinu, og það hefir gefið einhvern ádrátt um að selja eða láta af hendi öll sín rjettindi, bæði í Soginu og eins nyrðra í Skjálfandafljóti og víðar, fyrir 3–400 þús. kr.
Stjórnin hefir nú víst ekki tekið þessu tilboði, enda var ekki lagt fyrir hana í tillögunni 1919 annað en að ná rjettindum yfir Sogsfossunum. Það situr því sem sagt alt í sama farinu eins og 1919, og þó að þetta frv. gangi fram, þá er engin ábending í því um að ríkið eigi að taka Sogið. Nú er það álit mitt og fleiri manna, að betur þurfi að ýta við þessu máli, og því er það, að jeg, ásamt 2 öðrum þm., ber fram þál. um að skora á stjórnina að gera alvöru úr því að ná Soginu til handa ríkinu. Og þegar það er fengið, þegar ríkið er búið að ná yfirráðarjettinum, þá er fyrst tími kominn til að gerðar sjeu mælingar, uppdrættir, útreikningar, kostnaðaráætlanir og aðrar rannsóknir, sem gert er ráð fyrir í 1. gr. frv. Og því höfum við einnig tekið það með í 2. lið þál. Fyrst er að ná umráðarjettinum yfir vatnsfallinu og því næst fari fram rannsóknir. Og svo ríkisvirkjun. Þetta er töluvert öðruvísi í frv. Og jeg benti á það í nefndinni, að mjer þætti ákvæði 3. gr. allathugaverð. Eftir orðalagi og anda greinarinnar virðist það einkum haft í huga, að það verði einhver annar en ríkið, t. d. fossafjelagið „Ísland“, sem fái leyfi til að virkja vatnsfallið. Því að þar sem talað er um kostnað þann, sem ríkið leggur fram til mælinga o. s. frv., þá er sagt, að hann endurgreiðist ríkissjóði af þeim, sem heimild fær til virkjunar, ef heimild verður veitt. En það er nú sjer á parti, að hætt er við að ríkið fengi ekki þann kostnað uppborinn allan, því að ef fjelag, útlent eða innlent, fengi heimild til virkjunar, þá gæti það vel komið fyrir, að það fjelag þættist ekki geta notað eða bygt á þeim mælingum, sem búið væri að framkvæma, þættist sjálft þurfa að gera mælingar á ný og þessháttar, og þá væri endurgreiðsluskyldan og vonin hæpin.
Jeg skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara. Mjer þótti ýmsir gallar á frv., sem jeg nú hefi gert grein fyrir. Aftur á móti hefi jeg unnið að því, að málið kæmi fram í betri mynd, og er það þannig fram borið í þál.till. okkar, og má því frv. falla úr sögunni eins og það er, en þál.till. á að samþykkja.