12.05.1921
Neðri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1546 í B-deild Alþingistíðinda. (1447)
45. mál, Sogsfossarnir
Jón Baldvinsson:
Því er síst að neita, að hjer er stórmál á ferðinni. Virkjun Sogsfossanna er ekki aðeins framfaramál fyrir Suðurlandsundirlendið og Reykjavík, heldur mundi það einnig lyfta undir samskonar framkvæmdir annarsstaðar á landinu, og ætti, frá því sjónarmiði sjeð, að eiga örugt fylgi hjer á Alþingi.
En hvað frv. það snertir, sem hjer er til umr., þá hefi jeg ýmislegt við það að athuga. Þó að eiginlega engu sje slegið föstu um það, hvort ríkið eða einstakir menn eigi að byggja út fossana og virkja þá, finst mjer eftir orðalagi frv. að dæma megi heldur vænta þess, að einstökum mönnum eða fjelagi sje ætlað að gera það. Og eftir að hafa heyrt ræðu hv. frsm. meiri hl. (J. Þ.) sannfærðist jeg um, að svo eigi að verða. Aðalþráðurinn í ræðu hans snerist um það, hversu óvarlegt það væri fyrir okkur að bekkjast til við hina dönsku fjármálamenn, sem stæðu á bak við fossafjelagið „Ísland“; það gæti tafið fyrir framkvæmdum þessa máls um óákveðinn tíma. Hann var þó nýbúinn að taka það fram, að rjettindi þessa fjelags væru að ýmsu leyti ekki svo mikil, svo mjer sýnist þá ekki betur en nokkurra mótsagna kenni í framsöguræðu hans.
Ákvæði 2. og 3. gr. frv. gefa ástæðu til að ætla, að það sjeu einstakir menn, en ekki ríkið, sem framkvæma eigi virkjun þessa. Þess vegna býst jeg við að koma með brtt. til 3. umr., sem bendi í þá áttina að það sje ríkið eitt, sem framkvæmd þessa stórmáls hafi á hendi.
Í 1. grein finst mjer ekki nógu mikil áhersla lögð á orkuveitur til almennings þarfa, enda þótt í greinargerðinni sje dálítið frekar á það minst.
En það ætti að verða í fyrstu röð, því að þá yrðum við lausir við að hafa stóriðjuver, sem vafasöm eru og spurning um, hvort miði til þjóðþrifa.
Ríkinu er fult svo vel treystandi eins og einstökum mönnum til þess að útvega menn, er góða þekkingu hafa á slíku máli sem þessu, og til að hafa á hendi bygging og rekstur slíkra fyrirtækja. Jeg saknaði úr nál. meiri hlutans, að þar var hvergi á það minst, hvernig rannsókn þessi skyldi fram fara, en það er í mínum augum mikilsvert atriði, að til rannsóknanna sjeu valdir hæfir menn, sem óhætt er að treysta, og jeg hafði þá hugsað mjer, að stjórninni yrði bent á að reyna að útvega menn, sem t. d. væru í þjónustu sænska ríkisins, sem nú má eflaust telja hafa fullkomnasta þekkingu í þessum efnum, að minsta kosti Norðurlöndum.
Það eru þessi atriði, sem jeg hefi nú tekið fram, sem mjer finst vera þungamiðja þessa máls.
Jeg mun greiða frv. atkvæði mitt að þessu sinni, og reyna svo að athuga, hvort ekki sje gerlegt að koma með brtt. fyrir 3. umr., sem feli í sjer breytingar í þá átt, er jeg nú hefi minst á.
Um þingsályktunartill. á þskj. 425, er það að segja, að hana má vitanlega samþykkja, en þá þarf þó að fella inn í hana það, sem að rannsókninni lýtur og er frekar fram tekið í frv., því auðvitað er það í alla staði rjett, að ríkið fái öll ráð yfir vatnsrjettindunum við Sogið.