17.05.1921
Neðri deild: 71. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)
45. mál, Sogsfossarnir
Frsm. meiri hl. (Jón Þorláksson):
Jeg vil leiðrjetta það, að jeg hafi sagt, að „Ísland“ rjeði yfir bestu sjerfræðingum til þessara rannsókna. Svo er ekki, og jeg hefi aldrei talað neitt í þá átt. En jeg hefi bent á, að „Ísland“ stendur best að vígi í Danmörku hvað snertir þekkingu á efnavinslu, því að jeg má segja, að formaður þess sje forstjóri stærstu efnavinsluverksmiðju í Danmörku. Og það er áreiðanlegt, að mestu örðugleikar okkar í þessu máli verða að fá markað fyrir þá orku, sem verður umfram almenningsþarfir. Jeg vil líka leiðrjetta það, að við eigum undir högg að sækja við fossafjelagið „Ísland“. Vatnsrjettindi þess í Soginu eru ekki svo ýkjamikil, eins og bent hefir verið á, og sú leið er altaf opin að taka þau eignarnámi. Við stöndum því fulltryggilega að vígi gagnvart fjelaginu, því eignarnámsheimildin verður ekki af okkur tekin.