11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1593 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)

1. mál, hlutafélög

Frsm. (Einar Þorgilsson):

Háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) tók að sjer svör fyrir brtt. á þskj. 358 og gera grein fyrir þeim, og gerði það, sem vænta mátti, skýrt og röggsamlega. En það kom ekki fram hjá honum neitt, sem allsherjarnefnd ekki hafði gert sjer grein fyrir, og því ekki ástæða fyrir nefndina að taka aðra afstöðu til málsins en hún hafði gert við athugun þess. Jeg sje því ekki ástæðu til að fara lengra út í þetta, en vil geta þess, að það er nokkur misskilningur milli mín og háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) á brtt., sjerstaklega 2. lið, og ætla jeg því að fara um hann örfáum orðum, þótt jeg talaði um þær allar í framsöguræðu minni. Háttv. þm. (J. Þ.) sagði um brtt. við 10. gr., að það væri venja að greiða ekki meira inn af hlutafje en einn tíunda hluta áður en þau tækju til starfa, og nefndi í því sambandi byggingarfjelög. Frá mínu sjónarmiði eru þau alveg sjerstök, vegna þess, að þau þurfa minna rekstrarfje, þar sem þau þurfa ekkert til atvinnurekstrar.

Jeg skal þá benda á það, að það eina sjótryggingarfjelag, sem jeg þekki, hefir 1/4 innborgaðan af hlutafjenu, en 3/4 í svo góðum tryggingum með 1. og 2. veðrjetti eða handveð, og þau veð eru óhreyfanleg til annars þangað til alt fjeð er innborgað.

Hann gat þess, háttv. þm. (J. Þ.), að það væri þægilegra fyrir hluthafa að greiða einn tíunda hluta af því, sem þeir hafa lofað, og með því gætu fleiri orðið hluthafar eða fleiri fjelög stofnuð. Þetta er að vísu satt, en það yrði þá ekki eftir anda laga þessara, enda yrðu fjelögin ótryggari, ef minna er innborgað, væru óstarfhæfari, seinni að vinna sjer álit og ekki eins traust út á við. Þess vegna hefir nefndin álitið, að ákvæði frv. sje heppilegra, þar sem ómissandi er að hafa fjelögin vel trygð.

Um b-lið erum við sammála, og hefi jeg tekið það fram á öðrum stað. Þá er 2. brtt. við 23. gr., um að 5. töluliður falli burtu.

Háttv. þm. (J. Þ.) gat þess, að það væri ómak að vera að innrita brjefin og kostaði fje. En það er, að áliti nefndarinnar, nauðsynlegt að vita, hver fer með atkvæðin á fundum og hvar brjefin eru niður komin.

Þá er brtt. við 24. gr., að stjórnin byði út hlutaauka. Þetta er ekki þýðingarmikið atriði, þar sem hægt er fyrir stjórnina að bjóða út brjef, ef hluthafafundur hefir samþykt það, en að öðrum kosti á það ekki að vera hægt, og virðist brtt. því óþörf.

Þá er 5. brtt. við 31. gr. Þar er mestur ágreiningur milli háttv. nefndar og hv. tillögumanns.

Nefndin lítur svo á, og einnig háttv. Ed., að þetta ákvæði sje nauðsynlegt. Það er tekið úr sænskum lögum, þar sem þetta ákvæði hefir gilt í 10–12 ár. Það virðist því ekki ástæða til að breyta því. Þegar þetta ákvæði hefir verið sett í lög, hefir verið litið svo á, að tryggara væri að kaupa hluti og eiga þá með því að ákvæðið væri en án þess, og það virðist hafa verið rjett athugað, með því að enn er það óbreytt í sænskum hlutafjelagslögum, og þaðan er það tekið upp í frumvarp þetta, sem hjer er til umræðu.

Háttvirtur þm. (J. Þ.) sagði það ekki einhlítt, það mætti fara í kringum það, Engin lög, eða fá, eru svo, að ekki megi að einhverju leyti fara í kringum einstök ákvæði þeirra, og svo er um þetta. En ekki er vert að gefa ástæðu til þess með lögum, að ofríki sje hægt að beita samfjelaga.

Jeg get ekki verið að nefna dæmi. Eitt má þó minnast á. Það er hlutafje ríkisins í Eimskipafjelagi Íslands. Þar mun ríkið ekki hafa atkvæðamagn í hlutfalli við hlutafje sitt. Jeg legg því áherslu á, að þessi brtt. verði ekki samþykt.

6. brtt. við 33. gr. er svo smávægileg, að naumast er vert að taka hana til greina; hún er aðeins orðabreyting, sem engum ágreiningi eða misskilningi getur valdið. Flest hlutafjelög munu safna sjer sjóði eða sjóðum, til þess að geta staðist betur, ef tap verður á rekstrinum einstök ár. Ef þeir eru öflugir, má einnig veit? hluthöfum vexti af hlutum sínum, eins og segir í frumvarpinu, sem svarar bankavöxtum, þótt tap verði á rekstri fjelagsins. Hvort þetta er kallaður „arður“ eða ,,bankavextir“, sýnist ekki skifta miklu máli, en átt er við það með ákvæðinu, að útbýtingin sje þá ekki hærri en sem svarar bankavöxtum.

Hæstv. atvrh. (P. J.) fór nokkrum orðum um frv. og mintist á 1. brtt. við 10. gr. Áleit hana ekki til bóta. Einnig benti hann á, að 3. brtt. við 31. gr. væri ekki til bóta, því að varhugavert væri að hafa ekki neina takmörkun á atkvæðisrjettinum. Jeg finn því enga ástæðu til að orðlengja þetta mál út af ræðu hans.