11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
1. mál, hlutafélög
Jón Þorláksson:
Mjer þykir það vanta á undirbúning þessa frv., að ekki hefir verið leitað umsagnar þeirra, sem öðrum fremur eiga við þau að búa og reka starfsemi sem hluthafar í hlutafjelaginu. Þó lagakennari við háskólann hafi fjallað um það, er þess ekki að vænta, að hann hafi næga þekkingu á þeim venjum, sem hjer hafa verið upp teknar og hafa gefist vel.
Jeg vil svo snúa mjer að einstökum ummælum, og þá fyrst leiðrjetta það, að jeg hafi sagt, að það væri orðin lögvenja að borga ekki inn í hlutafjelög nema einn tíunda hluta. Hitt sagði jeg, að erlendis væri þetta svo um ýms hlutafjelög, af því að þau þurfa ekki meira fje handbært, einkum tryggingarfjelög. Svipað á sjer stað um sparisjóði, sem stofnaðir eru og reknir sem hlutafjelög. Og þess vegna er krafan um fjórðungsinnborgun, hvernig sem á stendur, of ströng.
Þá vil jeg minnast á ákvæði 2. gr., um skrásetning atkvæðaeigenda. Háttv. frsm. (E. Þ.) hjelt því fram, að þetta væri nauðsynlegt. En það hefir enga þýðingu. Það getur komið fyrir, og kemur fyrir, þar sem kauphallir eru, að hlutir hafi eigendaskifti oft á dag, og þar sem um handhafabrjef er að ræða, er yfir höfuð alveg þýðingarlaust að vita, hvað sá maður heitir, sem fer með atkvæðið á fundi, nema kannske fyrir fjelagsstjórnir, sem vilja koma fram einhverju ákveðnu máli.
Annars vildi jeg einkum beina máli mínu að ákvæðunum um atkvæðisrjettinn. Því hefir verið haldið fram, að þörf væri að halda ákvæðinu um fimtungstakmörkunina, til þess að einstakir hluthafar gætu ekki beitt aðra hluthafa órjetti, en það á ekki að vera vegna viðskifta fjelagsins út á við. En engum, sem á annað borð hefði slíkt í huga. yrði skotaskuld úr því að fara í kringum þetta atriði, t. d. með því að láta heimilismenn sína eða börn eða kunningja fara með atkvæðin. Jeg vil í þessu sambandi benda á það, að fyrir þessu þingi hafa legið 2 frv. um hluttöku ríkisins í hlutafjelögum. Og þar hefir þótt ástæða til þess að taka það fram, að ekki mætti skerða atkvæðisrjett ríkisins. En ef þessi skerðing er óeðlileg eða ósanngjörn, þegar ríkið á í hlut, ætti hún líka að vera það, þegar um heiðarlega einstaklinga er að ræða. Jeg gæti nefnt dæmi upp á hlutafjelög, sem hafa gert landinu stórkostlegt gagn, þar sem einstakir hluthafar hafa átt meira en einn fimta atkvæða. Eftir síðustu fjárkreppuna, 1908, var þilskipaútvegurinn í kaldakolum og tilraunir til botnvörpuveiða höfðu mistekist. Þá tóku 6 menn sig saman um það að láta smíða betra botnvörpuskip en áður tíðkaðist, og stofnuðu hlutafjelag, og voru í því 5 skipstjórar og 1 framkvæmdamaður annar. Skipstjórarnir tóku 1 hlut hver, en hinn 2. Skipið — Jón forseti — varð seinna fyrirmynd annara skipa um langan tíma, þótt nú hafi enn verið stigið nýtt spor áfram, fyrir forgöngu sama manns. En eftir því, sem nú er verið að reyna að færa í lög, hefði það dæmst ólögmætt, að þessi eini framkvæmdamaður hefði tekið á sig þarna meiri áhættu en hinir, og tekið 2 hluti á móti hinna eina. Fleiri slík dæmi gæti jeg talið.
Að lokum vil jeg svo beina þeirri fyrirspurn til hæstv. stjórnar, hvað. gera eigi við hlutafjelög þau, sem þegar eru til og ekki eru í samræmi við þetta ákvæði, ef frv. verður samþykt svona. Jeg hefi engin ákvæði fundið um það í frv. Þess vegna spyr jeg, og af því, að þessi fjelög eru mýmörg, sem svona er ástatt um.