11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1602 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)
1. mál, hlutafélög
Gunnar Sigurðsson:
Mjer skildist svo, sem hæstv. atvrh. (P. J.) hefði ekkert sjerstakt á móti því, að málinu yrði vísað til stjórnarinnar, ef svo vildi verkast. En hins vegar taldi hæstv. forsrh. (J. M.) það óþarfa. Hann gekk þó inn á það, að lagaframleiðslan og frumvarpaframleiðslan væri óþarflega mikil, að minsta kosti að því er við kemur þingmannafrumvörpunum, en jeg vil nú taka stjórnarfrumvörpin með, í ár að minsta kosti. Og þegar frumvörpin koma þar að auki illa undirbúin, er ver farið en heima setið.