13.05.1921
Neðri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í B-deild Alþingistíðinda. (1504)

1. mál, hlutafélög

Magnús Pjetursson:

Jeg þykist ekki þurfa að mæla fram með till. minni, því að háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) hefir fært gild rök að sinni till., sem lýtur að sama efni. En þótt tillaga hans ráði mikla bót á þessu atriði, þá virðist mjer samt of skamt farið, og því gengur mín till. út á, að ekki sje farið lengra niður en í 1/3 hluta. Er því betra, sem hverjum hluthafa er gefinn rjettur til að fara með sem flest atkvæði.