13.05.1921
Neðri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1509)
1. mál, hlutafélög
Gunnar Sigurðsson:
Jeg skal taka það fram, að jeg ætlaði að koma fram með brtt. við frv., að því leyti, sem það ríður í bága við staðháttu hjer, en mjer hefir ekki unnist tími til þess. Sakar það heldur eigi, þó gallarnir komi í ljós, er farið verður að nota lögin, því að þá er því ljettara að koma með brtt. á næsta þingi.