13.05.1921
Neðri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)
1. mál, hlutafélög
Jakob Möller:
Jeg gerði fyrirspum hjer við 2. umr. málsins, um hvernig bæri að skilja orðin „enginn má eiga eða fara með“. Er það nú upplýst, að þetta þýði aðeins að fara með. Hver einstakur hluthafi má því eiga ótakmarkað mikið. Bætir þetta mikið úr, en þá sje jeg ekki annað en að ákvæðið verði eintómur hjegómi. Munu menn ætíð finna ráð til þess, ef þeir eiga mikið í fjelagi, að fá einhverja til þess að fara með atkvæði sín eftir vild sinni. Sýnist því ástæðulaust að hafa slíkt ákvæði í lögum.