07.03.1921
Neðri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (153)
16. mál, sala á hrossum
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti! Frv. þetta er stjórnarfrv., eins og kunnugt er, og var gefið út sem bráðabirgðalög, sem gilda áttu til eins árs. Nefndin hefir leyft sjer að gera þá brtt., að þessi sömu lög verði látin gilda um óákveðinn tíma, en sem heimildarlög.
Í rauninni er þess ekki þörf, að hafa langa framsögu í málinu, en þó vil jeg, til skýringar, leyfa mjer að drepa stuttlega á nokkur atriði. — Í fyrsta lagi er þá þess að geta, að það munu vera eindregin tilmæli margra hrossahjeraða, að einkasölunni sje haldið. Ef bygt er á skýrslu um hrossasöluna síðastliðið ár, sem legið hefir fyrir landbúnaðarnefnd neðri deildar, og á reynslu frá fyrri árum, þá verður ekki annað sjeð en að hrossamarkaðurinn erlendis sje svo þröngur, að hann verði hæglega yfirfyltur. Á þetta benda sölutilraunirnar 1919 og 1920, að þegar óskað hefir verið eftir verðboðum. hafa þau ekki fengist sæmileg, nema því að eins að hrossakaupmönnunum væri um leið trygð einkasala. Með því skilyrði munu einnig horfur á því, að svipað verð haldist áfram. Nefnd inni þótti því varhugavert að slá því úr hendi sjer, þegar tillit er tekið til þess verðs, sem nú er. En það er ótvíræð lífsnauðsyn fyrir landbúnaðinn, að markaðurinn haldist góður, enda eru hross nú í tiltölulega bestu verði af landbúnaðarvörum, og mun söluverð þeirra síðastliðið ár hafa numið á aðra miljón króna. Við þetta bætist svo það, að nú má búast við meiri hrossasölu en áður. Því síðast mun allur þorri almennings í hrossahjeruðum alls ekki hafa gert sjer það ljóst, hver voði stóð fyrir dyrum í ýmsum efnum, peningakreppu, verðfalli afurða o. s. frv. Því ef svo hefði verið, er vafalaust, að selt hefði verið snögt um meira en gert var.
Sje nú gert ráð fyrir, að salan verði meiri á næsta sumri en áður, er það augljóst, að ef markaðurinn er þröngur, skiftir það ekki litlu, að kaupendur undirbjóði ekki hver annan, og það var ein af aðalástæðunum til þess að nefndin áleit rjett að heimila stjórninni að hafa einkasöluna á hendi.
En fyrst jeg er á annað borð staðinn upp, get jeg ekki gengið fram hjá einu atriði, sem nefndin hefir athugað og er þýðingarmikið í þessu máli. En það er fyrirkomulag sölunnar innanlands, sem hefir verið mjög á annan veg á ýmsum sviðum en hrossaeigendur hefðu kosið. Hins vegar má segja það um stjórnina, að hún hafi verið að þreifa fyrir sjer til þess, en nú ætti að vera komin sæmileg reynsla til að byggja á. Nefndin gerir ráð fyrir að koma með ákveðnar tillögur í þessu efni, þegar henni þykir fullsjeð, að frv. þetta nái fram að ganga. Þó vil jeg að eins benda á, að bæði má spara fje og gera framkvæmdir einfaldari en nú er, með því að fela störfin og umsjónina hrossaeigendum sjálfum í hverju hjeraði, eða þeim, er þeir kveddu til þess. Enda hefir kostnaðurinn innanlands verið óþarflega mikill, en mundi sjálfsagt geta lækkað um ef skynsamlega væri að farið. En allur innanlandskostnaðurinn mun hafa orðið fullar 100 þúsund krónur síðastliðið ár. Annað mætti einnig nefna, og það er greiðslumátinn undanfarið. Markaðshaldararnir hafa reitt ineð sjer svo skift hefir hundruðum þúsunda króna. Af fje því, sem þannig hefir verið tekið út úr bönkunum. hafa verið greiddir háir vextir, síðastliðið sumar um 10 þús. krónur, sem að miklu leyti mætti komast hjá, með því að nota ávísanir.
Eins og brtt. nefndarinnar ber með sjer, er gert ráð fyrir því, að valdið verði hjá hrossaeigendunum sjálfum. Þeir ráði sjálfir, eða meiri hluti þeirra, hvort einkasölunni verði haldið áfram og hve lengi.
Að skjóta málinu til sýslunefndanna í hrossahjeruðum landsins virðist einföld og óbrotin aðferð til þess að fá vitneskju um hug hrossaeigenda í þessu máli, og slíkar fyrirspurnir til sýslunefndanna ættu ekki að þurfa að tefja málið neitt. Með þessu yrði líka siglt fyrir það sker, að stjórninni yrði brugðið um það að halda einkasölunni í trássi við meiri hluta hrossaeigendanna.
Því hefir verið skotið fram, að nefndin hafi ekki skilgreint það, hvað hún eigi við með orðinu hrossahjerað. Það virðist þó liggja í augum uppi, að það eru þau hjeruð, sem selja hross til útflutnings, en þau munu vera um 8 á landinu.
Að endingu skal jeg geta þess, til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að til ríkiseinkasölu yfirleitt hefir nefndin, sem heild, enga afstöðu tekið, þrátt fyrir þetta mál, og hefir hver nefndarmaður því óbundnar hendur í þeim málum þessvegna.