20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1619 í B-deild Alþingistíðinda. (1533)
1. mál, hlutafélög
Atvinnumálaráðherra (P. J.):
Jeg játa það, að jeg er ekki jafnlöglærður og háttv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), en þó hygg jeg hann tæplega hafa reynslu til að kveða upp slíka dóma um lög og löggæslu, sem hann hefir nú upp kveðið. En það get jeg sagt, að jeg er kunnugri honum löggjafarsögu þingsins á síðastliðnum 20 árum. Eftir þeirri þekkingu vil jeg skýrá frá því, að það sem fljótfærnislegast hefir verið gert að lagasmíð, hefir komið frá þm. sjálfum, en ekki frá stjórninni. Eðlilega hefir hún þó búið frv. sín best úr garði að jafnaði, og þar á meðal þetta frv.
Að vísu mun það hafa átt sjer stað framan af, að frv. stjórnarinnar væru ekki svo góð sem skyldi, heldur lítið annað stundum en miður góð þýðing á dönskum lögum. Var þetta ekki óeðlilegt þá.
En síðan Háskólinn komst hjer á fót, hefir stjórnin hagað lagasmíð sinni á annan veg. Síðan hefir stjórnin ávalt notið aðstoðar bestu lögfræðinga við samningu meiri háttar lagafrv. Og má þar sem dæmi nefna siglingalög, sifjalög, vatnalög o. fl., og svo þetta frv., sem nú er hjer til umr.
Held jeg að þetta sje algerlega rjett að farið hjá stjórninni, að taka sjerfróða menn sjer til aðstoðar í þessum efnum, en láta þingið sem allra minst eyða tíma sínum í að sitja yfir vandasamri lagasmíð. Þingið á í raun rjettri ekki að semja lögin, heldur líta yfir þau, og einkum athuga stefnu þeirra.
Um þetta frv. hafa fjallað tveir viðurkendir lögfræðingar — jeg segi viðurkendir, vegna þess, að þeir eru nú báðir prófessorar í lögum við Háskólann. Hefir og annar þeirra áður verið bæði sýslumaður og ráðherra (Einar Arnórsson).
Einar Arnórsson er, eins og allir vita, prófessor hjer við Háskólann, og hinn, Magnús Jónsson, er líka prófessor hjer, og ætti það að vera nægilegur vitnisburður um, að þeir væru vel fallnir til þess.
En eins og jeg hefi tekið fram áður, þá eru þessi lög sniðin eftir því, sem er hjá öðrum þjóðum, og það getur komið sjer vel, meðan lögin eru í smíðum, að styðjast við það, sem er hjá grannþjóðum vorum, sem hafa haft miklu færari mönnum á að skipa og hafa átt kost á miklu meiri þekkingu á þessu sviði. Jeg held því, að ekki sje hægt að segja, að þetta frv. sje lauslega eða illa undirbúið, og af þeirri ástæðu mæla á móti því, að það gangi fram, þrátt fyrir að telja það heldur galla, að þessu ákvæði var bætt inn í það í Ed.