20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
1. mál, hlutafélög
1538Jón Þorláksson:
Aðrir þm. hafa notað mikið tímann í þessar umr., og vona jeg því, að mjer leyfist slíkt hið sama, enda er jeg þeirrar skoðunar, að þessu máli liggi ekkert á.
Skal jeg þá fyrst víkja að því, sem hæstv. atvrh. (P. J.) sagði, um undirbúning laga hjer á landi. Hann sagði, að það væri fljótfærnislegast í löggjöf vorri, sem komið væri frá einstökum þingmönnum, og oft hleypt gegnum þingið af kurteisi við höfundinn. Það má vel vera, að þetta sje rjett. En þannig er einmitt ástatt um ákvæði það, sem hjer er deilt um. Við höfum fundið að því, að stjórnin skuli ekki hafa borið frv. þetta undir þá menn, sem sjerþekkingu hafa á því, sem það fjallar um. Jeg er handviss um það, að það mundi ekki geta átt sjer stað annarsstaðar á Norðurlöndum, að slíku máli væri ráðið til lykta, án þess að það kæmi fyrst fyrir almenningssjónir.
Mjer finst, að hæstv. atvrh. (P. J.) ætti ekki að vera að halda uppi vörnum fyrir ákvæðinu í 31. gr., sem vitanlega er komið frá einstökum þm. Það er að vísu að formi til borið fram af nefnd, en upphafsmaður þess er einungis einn nefndarmanna.
Það er óheppilegt, að nefndin skyldi gerast til að bera fram þetta óheppilega ákvæði, því að það kemur af stað kappi. Þetta hefir á sjer öll einkenni þess, sem fljótfærnislegast er í löggjöf vorri. Því er skotið inn í fullsaminn lagabálk af einstökum þingmanni, borið fram af nefnd og haldið fram af miklu kappi.
Þá skal jeg leyfa mjer að leiðrjetta það, sem háttv. frsm. (E. Þ.) sagði um atkvæðisrjettinn í Eimskipafjelagi Íslands. Atkvæðisrjettur ríkissjóðs er ekkert takmarkaður, því að hann hefir fengið undanþágu. Enginn má fara með meira en 500 atkvæði, en ráðherra fer með 4000, en það er fullur atkvæðisrjettur í hlutfalli við fjármagn ríkissjóðs í fjelaginu.
En þrátt fyrir þessi ákvæði geta menn eins beitt ójöfnuði eftir sem áður, ef menn annars vilja slíkt, á „lögmætan“ hátt. En þetta fælir heiðarlega menn, sem ekki vilja líta á þetta sem þýðingarlaust pappírsatriði, frá því að taka meira en fimtung í hlutafjelagi. Hitt gæti komið til mála, að leyfa stjórnarráðinu að veita undanþágu, þegar ástæða þætti til, en það er óverjandi að láta þetta standa sem almenna reglu.
Jeg tel því, að öllu athuguðu, langrjettast og sjálfsagðast að vísa máli þessu til stjórnarinnar, og hefi bæði jeg og aðrir fært fyrir því ýms rök áður hjer í þessari háttv. deild, og leyfi jeg mjer að vísa til þess, til að lengja ekki umræðurnar um of. En jeg vil leyfa mjer að bæta einu atriði við, sem mörgum mundi einnig þykja sæmileg ástæða. Hjer liggja fyrir eftirtektarverðar brtt., frá háttv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.), brtt., sem háttv. flm. sjálfur hefir ekki getað skýrt hjer nje mælt með, þar sem hann hefir verið hættulega sjúkur. En nú er hann einmitt flestum þm. kunnugri þessu máli, og virtist það því ekki nema sanngjörn kurteisi við sjúkan samþingismann, að fresta úrslitum málsins, úr því að það er ekki meira aðkallandi en þetta er. Auk þess ætti, eins og oft hefir verið tekið fram af mjer áður, að bera þetta undir fulltrúa þeirra, sem helst eiga við lög þessi að búa, og er það líka innan handar, þó það hafi ekki verið gert.
Jeg á svo aðeins eftir að ljúka máli mínu á því, að jeg mun nú á fundinum leyfa mjer að afhenda hæstv. forseta rökstudda dagskrá í þessu máli, sem fer í þá átt, að ráðið verði fram úr þessu máli á þann hátt, sem jeg hefi þegar lýst, með því sem sje að vísa því til stjórnarinnar.