07.03.1921
Neðri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
16. mál, sala á hrossum
Gunnar Sigurðsson:
Jeg skal ekki fara mörgum orðum um frv. sjálft, því að öll hrossahjeruð munu vera sammála um einkasöluna.
Jeg vildi að eins benda á það, að meiningarlaust virðist vera að bera þetta undir sýslunefndirnar nú sem stendur, þó það geti verið „princip“-mál í framtíðinni. Því menn vita fyrirfram hverju þær svara. Þar að auki mundi það tefja fyrir því, sem er aðalatriðið, að geta sem fyrst farið að undirbúa sölu á hrossunum og rannsaka allar markaðshorfur. Og það er þetta, sem jeg vil hjer sjerstaklega brýna fyrir stjórninni. En sýslunefndir þarf ekki að spyrja. því það er óþarfi.