07.03.1921
Neðri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í B-deild Alþingistíðinda. (157)

16. mál, sala á hrossum

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Jeg skal reyna að svara þessum spurningum háttv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.).

Mjer er ekki kunnugt um, að neitt hafi komið frá bresku stjórninni viðvíkjandi hrossasölunni í sumar, að minsta kosti ekki neitt það, sem úrslit hafi getað haft á hrossasöluna, svo allur sá orðrómur er því uppspuni. En viðvíkjandi samningunum við Zöllner, þá er það rjett, að þeir voru gerðir áður en bráðabirgðalögin voru gefin út, enda skýrði jeg frá því þegar í upphafi við 1. umr. þessa máls. Að vísu var það stjórnin, sem kom þessu til leiðar, og upphaflega var það ætlun hennar að vita hvort hjeruðin sjálf gætu ekki með nógu öruggum samtökum tekið að sjer útflutninginn. En kringumstæðurnar í fyrra vetur og vor voru þann veg lagaðar, að ómögulegt var að fá hjeruðin til að starfa að framkvæmd þessa máls; því það var rjettilega tekið fram hjá hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), að það þarf að byrja að vetrinum eða snemma vors að undirbúa hrossasöluna fyrir næsta sumar. Nú leið tíminn svo, að málið var í þann veginn að komast í eindaga, svo stjórnin sneri sjer til sambandsfjelaganna hjer, Sláturfjelagsins og Sambands ísl. samvinnufjelaga, og fjekk þau bæði til þess að beita sjer fyrir málið, bæði með því að safna hrossaloforðum innanlands, svo og að grenslast eftir markaði erlendis.

Samband ísl. samvinnufjelaga sendi þegar mann til Englands, og eftir komu hans þangað fjekk hann tilboð frá einum manni um kaup á öllum smærri hestum. Tilboð þetta sendi hann þegar út hingað til umsagnar, en fresturinn var stuttur og ómögulegt að ná nægum hrossaloforðum hjer innanlands á svo stuttum fresti. Þá var komið talsvert fram í maí, svo hjer varð annaðhvort að hrökkva eða stökkva, samþykkja tilboðið eða hafna því, þó að loforð hjeraðanna væru ekki komin. En væri tilboðinu hafnað, mátti búast við að hrossasalan væri eyðilögð þetta sumar. Sá stjórnin því ekki önnur ráð en að samþykkja tilboðiðn á þeim grundvelli, að einkasölubráðabirgðalögin kæmu þá þegar. Var samningurinn því gerður 24. maí, en bráðabirgðalögin útgefin 29. maí. Svona er gangur þessa máls rjett sagður.

Viðvíkjandi samningnum við Zöllner, í sambandi við kolainnflutning frá Englandi. get jeg vísað til þess, sem jeg hefi áður sagt. Það er satt, að samningurinn var um hvorttveggja í einu, hrossasöluna og kolakaupin, enda hefir slíkt tíðkast mjög áður. Og jeg býst við, að hrossaútflutningur til Englands hefði alls ekki tekist nema að hlaða skipin kolum, sem sækja áttu hrossin hingað; að því leyti er kann ske hægt að segja að hrossasalan hafi bygst á kolainnflutningnum, og mín meining er, að hrossasalan hafi einmitt haft óbeinlínis hagnað af þessum samningum. Hitt var líka vitanlegt, að örðugt var að fá útflutningsleyfi fyrir kol frá Englandi, án samninga, svo gera má ráð fyrir, ef samningar hefðu ekki tekist, að hrossasalan hefði farið út um þúfur og landið orðið kolalaust. Og hvað snertir markaðsverð hrossanna. Þá leið það alls ekkert við kolaverðið.

Mjer er ekki kunnugt um, að nein hærri tilboð í hrossin hafi komið eftir að samningarnir við Zöllner voru gerðir. En eins og jeg skýrði frá um daginn, þá varð hrossaverðið hærra í Danmörku en í Englandi, vegna þess að Danir voru fúsir á að taka hryssurnar jöfnum höndum með hestinum, eða jafnvel eingöngu, og borga þær hærra verði en Zöllner vildi gefa fyrir hryssur.

Fleiri upplýsingar ætla jeg ekki að gefa við þessa umræðu, en jeg er fús að tala frekar við hv. landbn., óski hún þess.