09.03.1921
Neðri deild: 18. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)
76. mál, bæjarstjórn á Akureyri
Flm. (Magnús Kristjánsson):
Jeg sje ekki ástæðu til að færa mörg rök frv. þessu til stuðnings; jeg vona, að háttv. deildarmenn hafi kynt sjer málið. Jeg vil aðeins bæta örfáum orðum við greinargerð frv. Eins og sjá má, fer frv. ekki fram á annað en að þingið, að forminu til, veiti bæjarfjelaginu heimild til að koma fjármálum sínum í haganlegt horf. Þessi breyting getur því ekki talist athugaverð, og er ekki hætta á því, að hrapað verði að henni undirbúningslaust, því að málið verður eflaust rætt á borgarafundum bæjarfjelagsins, og þar geta allir átt kost á að beita áhrifum sínum í þá átt, sem þeir álíta heppilega. Jeg geri ráð fyrir því, að sú stefna sje ráðandi hjer, að stuðla beri að því, að sveitar- og bæjarfjelög fái sem mest sjálfsforræði um sín eigin mál, ef það kemur ekki í bága við hagsmuni almennings. Hjer er ekki um slíkt að ræða. Frv. fer aðeins fram á að finna rjettlátan grundvöll fyrir nauðsynlegar tekjur bæjarfjelagsins. Jeg verð að halda því fram, að hækkun sú, sem frv. fer fram á, er ekki svo mikil, að hún ætti að vaxa mönnum í augum. Til skýringar má geta þess, að þær lóðir, sem frv. nær til, eru varla að jafnaði meira en 500–1000 kr. virði, og verður því skatturinn af þeim eftir lægra gjaldinu 5–10 kr., en eftir hærra gjaldinu 10–20 kr. Það er ekki stórt spor, sem stigið er. Á túnum og matjurtagörðum verður eftirgjaldið helmingi lægra. Ef gert er ráð fyrir, að meðaltún þar um slóðir sje um 10 dagsláttur, og það sje vel girt og vel ræktað, þá mundi mega meta það á 5 þús. kr. og gera ráð fyrir, að það gefi af sjer um 80 hesta, og verður skatturinn þá eftir lægra gjaldinu 25 kr., en 50 kr., ef hærra gjaldið er lögleitt. Af þessu má sjá, að engum er mjög íþyngt, þótt þetta nái fram að ganga. Eins má taka t. d. matjurtagarða, og ef gert er ráð fyrir, að þeir sjeu að meðaltali um 100 ferfaðmar og gefi af sjer 5 tunnur af garðávöxtum, verður skatturinn 1 kr. eftir lægra gjaldinu, en 2 kr. eftir því hærra, ef hver ferfaðmur er metinn á 2 kr. Menn sjá, að 2 kr. er ekki hár skattur á eign, sem er 200 kr. virði.
Sveitar- og bæjarfjelög geta ekki látið sjer nægja óviss útgjöld ein, frekar en ríkið. Það verður að vera eitthvað ákveðið að halda sjer við. Það er til lítils að leggja á menn svo og svo mikið, og eiga það á hættu að þessi skattur heimtist ef til vill aldrei inn. En jörðin hleypur ekki frá mönnum; hún er sá skattstofn, sem er öruggastur. Á Akureyri er landbúnaður í framför, en það lítur út fyrir, að heldur sje að draga úr sjávarútveginum, og er því eðlilegt, að skatturinn lendi á jörðinni.
Jeg þarf ekki að ræða þetta frekar. Mjer finst málið svo ljóst og sjálfsagt, að jeg skil ekki annað en það fái hinar bestu undirtektir, og sje jeg ekki ástæðu til að setja það í nefnd. En ef til þess kemur, mun það eiga heima í allsherjarnefnd, en jeg geri það ekki að till. minni, að því verði vísað þangað.