01.04.1921
Efri deild: 32. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (1589)
76. mál, bæjarstjórn á Akureyri
Jóhannes Jóhannesson:
Ástæðan fyrir því, að jeg vil ekki taka upp í dagskrártill. ákvæði um, að frv. um það efni, er hjer ræðir um, verði lagt fyrir næsta þing, er sú, að sýslufundir eru þegar um það afstaðnir í ár, og verða ekki haldnir fyr en í marsmánuði næsta ár. Þess vegna er ekki unt, að álit sýslunefnda um það geti legið fyrir næsta þingi, nema þá að sýslunefndir væru kvaddar á aukafund til þess að ræða málið. Jeg er ekki á móti því, að gjald það, er hjer ræðir um, verði hækkað. En jeg álít nauðsynlegt, að samræmi fáist um alla lögmælta tekjustofna kaupstaðanna, og einnig sveita og sýslna, sem nauðsynlega þurfa að fá nýja tekjustofna til að styðjast við, svo ekki þurfi að vera að grauta í þessu þing eftir þing, og að samfeld löggjöf um þetta efni verði gildandi í framtíðinni, en að ekki gildi önnur lög í þessum en hinum kaupstaðnum. Og jeg hygg, að Akureyrarkaupstaður geti vel beðið, þar til þetta er komið í kring.