07.03.1921
Neðri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í B-deild Alþingistíðinda. (159)
16. mál, sala á hrossum
Þórarinn Jónsson:
Jeg geri mig ánægðan með svör hæstv. atvrh. (P. J.), sjerstaklega þó hvað það snertir, að hærri tilboð í hrossin hafi ekki komið. Jeg var ekki kominn til þings, er 1. umr. þessa máls fór fram, og vissi því ekki hvernig hæstv. atvrh. hafði reifað málið. En eitt atriði, sem hæstv. atvrh. tók fram í svörum sínum til mín, finst mjer ekki nægilega upplýst, og vildi jeg því fá frekari skýringar á því, en það er um kolin í sambandi við útflutning hrossanna. (Atvrh.: Jeg get ekki útskýrt það í þingræðu, en nefndinni skal jeg gefa allar þær upplýsingar, sem jeg get). Jæja, jeg geri mig þá ánægðan með það.
Viðvíkjandi því, sem hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) sagði, að hann vildi ekki snúa sjer til sýslunefndanna nú, þá sje jeg ekki að það þurfi að vera neitt hættulegt við það, eða að tefja fyrir málinu. Það þarf ekki lengi að bíða eftir svörunum. Hvort sem hrossahjeruðin eru með einkasölu á hrossum eða ekki, ætti það ekki að taka langan tíma að senda álit sýslunefnda til stjórnarinnar. Og úr því hv. þm. (Gunn. S.) telur það rjett í framtíðinni, þá ætti það eins að vera rjett nú.
Jeg sje ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta nú. Sleppi að þessu sinni innanlandsútgjöldunum, enda býst jeg við, að mjer gefist tækifæri til að athuga þau nánar síðar.