21.03.1921
Efri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1655 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)

81. mál, sala á Upsum

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg er svo sem ekkert á móti því, að máli þessu verði vísað til nefndar, en nefndin gerir sjálfsagt ekki annað í málinu en að leggja til í tveim línum að það verði samþ. Hygg að annað samskonar mál hafi verið sett í nefnd í Nd., en þetta frv. þótti eigi eiga neitt erindi þangað.