18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1677 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)
65. mál, biskupskosning
Jón Þorláksson:
Það þarf að lagfæra síðustu línuna í 3. gr. frv. í stað „og“ komi „sem“ og komma á undan. Þá verður meiningin, að kirkjustjórnin geti valið einn hinna þriggja presta, sem flest hafa fengið atkvæðin. Eins og greinin er orðuð er hún alveg meiningarlaus, og er þetta líklega prentvilla.