09.04.1921
Neðri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)
77. mál, einkaleyfi til útgáfu almanaks
Forsætisráðherra (J. M.):
Þetta frv. er borið fram fyrir mína hönd í háttv. Ed., og gerði jeg grein fyrir því, er það kom þar fyrst fram.
Eins og kunnugt er, hafði Kaupmannahafnarháskóli einkarjett til útgáfunnar, en því var hreyft, um það leyti, sem Háskólinn hjer var stofnaður, að einkaleyfið flyttist til hans. Má vel vera, að auðsótt hefði verið að fá þetta þá þegar, en nú, eftir að sambandslögin gengu í gildi 1. des. 1918, þurfti eigi að fara neina samningaleið um þetta, því með þeim er þessi einkarjettur Kaupmannahafnarháskóla fallinn burtu, og ekkert orðið því til fyrirstöðu, að Háskólinn hjer fái það.
Það er eðlilegt, að einkarjettur sje á útgáfu almanaksins, því með því er trygging fengin fyrir því, að skekkjur sjeu engar. Auðvitað er þá þessi hataða einokun komin á, þó í litlum mæli sje, en jeg vona nú, að það verði nú samt ekki málinu að falli.
Eins og sjá má af greinargerðinni, er búist við dálitlum tekjum af þessu, ef verðið hækkar að mun. Háskólaráðið gerði ráð fyrir, að eintakið yrði 50 aura, en mjer sýndist rjettara að hafa það ekki nema 40 aura, því að ágóði verður samt, ef útgáfukostnaður bóka lækkar. Háskólaráðið fór einnig fram á, að það rjeði verðinu, en mjer, sýndist rjettara, að landsstjórnin hefði hjer hönd í bagga með, svo að trygging væri fyrir því, að verðið yrði ávalt hæfilegt. Annars er frv. borið undir Háskólaráðið, og það samþykt því að mestu leyti. Háttv. Ed. hefir gert smábreytingar á því, og veit jeg ekki, hvort það er gert í samráði við Háskólaráðið, en jeg óskaði þess, að hún bæri þær undir það, og sama vil jeg leyfa mjer að biðja háttv. deild hjer að gera, ef hún kynni að gera breytingar á því.
Um eina breytinguna, sem háttv. Ed. hefir gert, sem sje þá, að þetta komi ekki til framkvæmda fyr en árið 1923, skal jeg taka það fram, að hún er gerð vegna þess, að Þjóðvinafjelagið er búið að gera kaup á almanakinu til þess tíma.
Frekari meðmæla held jeg, að ekki sje þörf með frv., nema ef svo væri, að háttv. deild gæti eigi unt Háskólanum að njóta þessa litla ágóða.