08.04.1921
Neðri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)
101. mál, slysatrygging sjómanna
Frsm. (Þorleifur Guðmundsson):
Frv. þetta hefir borist sjávarútvegsnefnd frá hæstv. atvrh. (P. J.), en þangað var það komið frá stjórn slysatryggingar sjómanna.
Breytingar þær, sem hjer er um að ræða, eru aðallega fólgnar í hækkun skaðabótanna fyrir slys, og þar af leiðandi hækkun iðgjaldanna. Þetta hvorttveggja var áætlað of lágt þegar lögin nr. 84, 1917, voru samin, svo að það er skiljanlegt, að nú eru þau orðin alt of lág, eftir þær miklu verðlagsbreytingar, sem orðið hafa síðan 1917.
Frv. mun jeg taka til nánari athugunar í einstökum atriðum við 2. umr. Það er sjáanlegt, að bætur fyrir slys eru átakanlega litlar eftir núgildandi lögum, þegar tekið er tillit til verðlags og þarfa. Iðgjöldin verða því að hækka, án þess að gjaldendum sje íþyngt um of með því. Jeg mun annars fara nákvæmar út í þetta við 2. umr.