15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)

101. mál, slysatrygging sjómanna

Frsm. (Þorleifur Guðmundsson):

Þegar þetta frv. var hjer til 1. umr., skýrði jeg háttv. deild frá því, hvernig það var til komið og að það miðar aðeins að því að gera hinar nauðsynlegustu breytingar á núgildandi lögum um þessi efni, í samræmi við þær verðlagsbreytingar, er orðið hafa.

Og nú vil jeg því skýra frv. og hinar einstöku breytingar, er það fer fram á, nokkuð nánar.

1. gr. frv., sem er breyting við 3. gr. núgildandi laga, er aðallega fólgin í því, að iðgjaldið hækkar úr 70 aurum upp í 1 krónu um hverja viku. Og einnig breyting á sjálfri iðgjaldsgreiðslunni, sem er fólgin í því, að hámarksstærð mótorbáta þeirra, er njóta ríkissjóðstillags, er færð niður úr 12 smál. í 5.

Það hefir komið í ljós, að fæstir bátar í Vestmannaeyjum og í veiðistöðum austan fjalls eru 12 smál. eða þar yfir. Hafa þeir því nærri allir heyrt undir þá stærð báta, sem ríkissjóður greiðir fyrir iðgjöldin að nokkru leyti. Og virðist það óþarfi, enda jafnvel ekki sanngjarnt, þar sem útgerð á þeim smærri bátum ber sig engu ver en á þeim stærri.

2. gr., sem er breyting á 5. gr. laganna, fjallar um frjálsa tryggingu, og er gjaldið þar í fullu samræmi við breytinguna á 3. gr. núgildandi laga. Þar er vikugjaldið einnig fært upp í 1 kr. úr 70 aurum.

Til frjálsra trygginga heyra þeir, sem aðallega róa á smærri bátum, og eru því ekki tryggingarskyldir samkvæmt slysatryggingarlögunum, en hafa rjett til þess samkvæmt 5. gr. laganna.

3. gr., sem er breyting á 6. gr. laganna, er hækkun á skaðabótunum, og eru þær að vísu nokkuð hærri að tiltölu við hækkun iðgjaldanna, en það virðist óhætt vegna efna og ástæðna sjóðsins, og að fenginni reynslu, sem þó er ekki yfir langan tíma, því að sjóðurinn er ungur enn, þar sem hann var stofnaður 1. júlí 1918. En þá lagðist niður um leið slysatrygging sjómanna eftir eldri lögunum, og má því nokkuð miða við reynslu fyrri ára í þessu efni. Þær breytingar verða á skaðabótunum, ef frv. verður samþ., að örorkubætur hækka um 1000 kr., úr 2000 upp í 3000 kr., dánarbætur um 500 kr., úr 1500 upp í 2000 kr. Viðbótargreiðsla til ekkju fyrir hvert skilgetið barn hækkar um 100 kr., úr 100 kr. upp í 200 kr. Til óskilgetinna barna um 200 kr., úr 200 upp í 400 kr., og viðbótargreiðsla. ef aðeins er um eftirlifandi börn að ræða, um 100 kr., úr 100 kr. upp í 200 kr.

4. gr. frv., sem er breyting á 12. gr. laganna, er um hækkun á sektarákvæðum laganna, úr 5–100 kr. í 50–1000 kr. Þetta stökk er nokkuð langt, en það kemur af því, að við breytinguna, er gerð var á lögunum um slysatryggingu sjómanna á þinginu 1917, hefir láðst að breyta sektarákvæðunum í samræmi við þá hækkun, sem varð á tryggingarupphæðunum.

5. gr. frv. þarf ekki skýringar við.

Eins og sjá má af frv., helst skifting iðgjaldanna að mestu leyti óbreytt. Hlutföllin hafa þó aðeins raskast lítið eitt við það, að hentugra þótti, vegna innköllunar iðgjaldanna, að þau stæðu á heilum eða hálfum tug.

Það sjest einnig á frv., að örorkubætur eru þar hækkaðar nokkru frekar en dánarbætur, eins og skýrt var frá áður, og er það gert að málinu athuguðu, og mun jeg koma að því síðar.

Eftir að frv. var útbýtt í háttv. deild hefir komið fram brtt. við það á þskj. 175, frá 2. þm. Reykv. (J. B.). Hún er við 1. og 3. gr. frv. Ætla jeg þá fyrst að fara nokkrum orðum um 2. lið brtt., sem er breyting á 3. gr frv., í þá átt, að fyrir kr. 3000 komi 4000, það er að segja, háttv. þm. (J. B.) vill, að fyrir algerða örorku verði bætt alt að 4000 kr.

Nefndinni virðist sjálfsagt að taka þessa brtt. til greina, því að þótt það sjeu tvöfaldar bætur, borið saman við dánarbætur, þá er þess að gæta, að örsjaldan hefir sjóðurinn þurft að greiða örorkubætur, samanborið við dánarbætur — aðeins í 5 tilfellum, og þó ekki nema að litlum hluta í hvert sinn, síðan sjóðurinn var stofnaður — og að sjóðurinn virðist fær um að greiða svona ríflegar bætur þegar slys bera að höndum, því að efnahagur sjóðsins er tiltölulega góður og hefir aukist nokkuð hröðum fetum á þessum stutta tíma, sbr. reikninga sjóðsins og rekstur árið 1919.

Á því ári voru tekjur (iðgjöld) kr. 104376.39, en gjöld: dánarbætur 49700 kr. og örorkubætur aðeins 700 kr.

Eign sjóðsins var í árslok 1919 kr. 238106,18, en af því var eign frá árslokum 1918 kr. 177829,60. Hefir sjóðurinn því vaxið á því eina ári um rúmar 60 þús. kr., eða 60276,58 kr.

Á þessu sjest, að sjóðurinn hefir vaxið vel, og einnig, að örorkubætur hafa verið mjög lágar, enda hafa þau slys, er þeim valda, verið mjög sjaldgæf, en dánarbætur aftur mikið tíðari.

Þeir, sem verða fyrir slysum, verða þó sjaldan algerðir öryrkjar, og er þá aðeins goldið í hlutfalli við það, hvað hver þeirra telst vanfær til vinnu. Það virðist og sanngjarnt, og jafnvel sjálfsagt, að örorkubætur sjeu mun hærri en dánarbætur, því að fyrst er þar engum bótum heitið fyrir barnafjölda, líkt og þegar um dánarbætur er að ræða, og svo er það sjáanlegt, að fjölskyldan er efnalega ver stödd í því tilfelli, því að þá er einum ómaganum fleira fram að færa en áður. Og ekki virðist það geta verið minni framfærslueyrir til manns, sem til dæmis verður öryrki á yngri árum, en 4000 kr. — Það er vissulega of lítill framfærslueyrir til margra ára, en við það verður að sitja nú, því að ástæður og fyrirkomulag sjóðsins leyfa ekki meira, enn sem komið er. En jeg skal geta þess, að nefndin hefir borið þetta undir formann sjóðsins, og hann kvað sjóðinn vel geta borið þetta, þar sem hann hefði aukist svo mikið.

Jeg vil samt geta þess, til þess að gefa mönnum ekki rangar hugmyndir um stöðugan vöxt sjóðsins, að það má ekki búast við eins miklum vexti hans á árinu 1920 eins og árið 1919, því að á því ári skeði það, að auk þeirra bóta, er venjulega geta átt sjer stað, kom það fyrir, að sjóðurinn varð að greiða um 50–60 þús. kr. vegna þess slyss, að þilskipið „Valtýr“ fórst með allri áhöfn. Þar hurfu 30 manna líf, er bæta þurfti. — Þetta er, sem betur fer, orðið sjaldgæfara nú en áður, er menn stunduðu veiðar á þeim skipum, sem ekki höfðu hjálparvjel, og síðan togararnir komu í stað þilskipanna hafa dauðaslys á sjó orðið mikið færri. En aftur hafa önnur slys orðið nokkuð tíðari, en þeirra gætir mikið minna fyrir sjóðinn.

Þá skal jeg koma að fyrri lið brtt. háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.), á þskj. 175, sem er breyting á 1. gr. frv. Sú breyting veldur því, ef samþykt verður, að sá, sem er trygður, yrði ekki skyldur til að greiða neitt af iðgjaldinu, heldur útgerðarmaðurinn skyldur að greiða það alt. Hjer skiftast vegir okkar, og verð jeg að mótmæla því í nafni meiri hluta sjávarútvegsnefndar, að sú breyting nái fram að ganga í háttv. deild, því að sú tillaga fer í öfuga átt, ekki svo mjög vegna þess, að ekki standi á sama, hvor vegurinn er farinu, frá peningalegu sjónarmiði. Það skiftir engu að því leyti, hvort útgerðarmaðurinn greiðir það alt eða að nokkru leyti, því að hvernig sem á það verður litið, verður það ávalt framleiðslan, sem greiðir. Ef útgerðarmaður greiðir þetta iðgjald, þá kemur það niður á kaupi mannanna; það verður lægra en ella.

En það er annað í þessu sambandi, sem veldur því, að það er betra að þeir, sem trygðir eru, greiði iðgjöld sín sjálfir, betra vegna þeirra sjálfra og jafnvel þjóðarinnar í heild sinni. Því að það eitt, að gjalda gjöld sín sjálfur og að hafa það í meðvitund sinni, að hafa borgað tryggingargjöld sín með sínum eigin peningum, vekur og heldur við sjálfsagðri sjálfstæðistilfinningu, sem enginn einstaklingur má missa, hvorki sjálfs sín nje þjóðar sinnar vegna. Það er þessi sjálfstæðistilfinning og þráin til sjálfstæðis, sem hver góður Íslendingur á að varðveita í brjósti sjer og brjóstum allra landa sinna, og á að ráða hjer mestu. Því að aum er sú þjóð, sem ekki varðveitir sjálfstæði sitt. Og möguleikinn til þess byggist eingöngu á sjálfstæðismeðvitund einstaklinganna.

Jeg vildi því biðja háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.) að taka tillöguna aftur; jeg veit, að hún er fram komin í góðmannlegum tilgangi við þá stjett, er hann er aðallega studdur af til setu á hinu háa Alþingi, og vona jeg, að hann taki það til greina, er hann athugar, að hjer er ekki neinu að tapa fyrir stjettina, en aftur á móti miklu að tapa fyrir þjóðarheildina, ef tillaga hans er samþ. Jeg vona, að hv. tillögumaður (J. B.) sjái það, að með þessu lamar hann sjálfstæði einstaklingsins, og þá sjálfstæði alþýðunnar, og þar með þjóðarinnar í heild sinni. Og óska jeg því helst, að hann taki tillöguna aftur, og finst mjer, að þjóðin eigi heimtingu á því, að foringjar alþýðuflokksins geri ekkert það, sem orðið geti til þess að lama sjálfstæði alþýðunnar eða draga úr sjálfsbjörgunartilhneigingu hennar. Því að það eitt er víst, og það hlýtur hv. tillögumaður (J. B.) að viðurkenna, að þar, sem fleiri sjálfstæð hjörtu slá, þar er meira þjóðarlíf og kraftur.