27.04.1921
Neðri deild: 53. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)
123. mál, seðlaauki Íslandsbanka
Forseti (B. Sv.):
Samkvæmt ósk háttv. stjórnar vil jeg fara þess á leit við háttv. deild, að hún leyfi þau afbrigði frá þingsköpunum, að frv. til laga á þskj. 405 verði tekið til 1., 2. og 3. umr. á þrem fundum í röð, sem háðir verði á undan hinum auglýsta deildarfundi.