27.04.1921
Efri deild: 53. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)

72. mál, vátrygging sveitabæja

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Landbúnaðarnefndin hafði ekki athugað við 2. umr., að breyta þurfti fyrirsögn frv. En eftir 2. umr. benti háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) nefndinni á, að betur færi á því, og fjelst hún á það. Nefndinni fanst nú ekki ástæða til að gera brtt. um þetta, en væntir, að forseti sjái sjer fært að láta bæta orðunum: „svo og um lausafjárvátryggingu“ aftan við fyrirsögnina í umprentun frv.