18.04.1921
Efri deild: 46. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

86. mál, samvinnufélög

Jóhannes Jóhannesson:

Eins og deildin sjer, þá hefi jeg skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara, sem gildir 9. brtt. nefndarinnar, 3. lið, þar sem ákveðið er, að fjelögin greiði fastan skatt til sveitar- og bæjarsjóða, er nemi 2% af virðingarverði húsa þeirra, sem fjelögin nota.

Jeg fyrir mitt leyti tel vafamál, hvort rjett sje að lögákveða skatt til sveitar- og bæjarfjelaga á þennan hátt, og um þennan skatt er það að segja, að mjer finst hann tæplega nógu hár, og ekki rjett að einskorða hann alstaðar við jafna hundraðstölu af virðingarverði húsa þeirra, sem fjelögin nota til rekstrarins. Því að húsin eru mjög mismunandi dýr. — Svo ber þess líka að gæta, að þarfir í hinum ýmsu sveitar- og bæjarfjelögum eru mjög mismunandi, og útsvörin þar af leiðandi mjög misjöfn. Það er því álitamál, hvort rjett sje að hafa alstaðar jafnan, fastákveðinn skatt, sem samvinnufjelögin eigi að greiða. En jeg hefi ekki komið með brtt., af því að jeg tel svo mikinn vanda að ákveða skattinn, að jeg hefi beinlínis ekki treyst mjer til þess, af því að mig brestur kunnugleik til þess, bæði á verðmæti húsa, er samvinnufjelögin nota, og á þörfum hlutaðeigandi bæjar- og sveitarfjelaga.

Mjer væri því næst að leggja það til, að ákveðið væri, að skatturinn mætti ekki hærri vera en t. a. m. 5%, og að sveitar- og bæjarstjórnir hefðu þannig óbundnar hendur með það, hve háan skatt þær legðu á fyrir neðan þetta hámark.

Því að maður yrði að treysta því, að þær gerðu það rjett og samviskusamlega, eftir því sem þarfirnar krefðu, og hefðu hann ekki hærri en sanngjarnt væri, samanborið við önnur gjöld.

Jeg hefi, eins og jeg hefi tekið fram, ekki komið með brtt., en skrifað undir með fyrirvara, til þess að hafa óbundnar hendur, ef einhver kæmi með brtt., er gengi í þessa átt og jeg gæti felt mig við.