15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Þingsetning

forsætisráðherra (J.M.):

Þá hefir hans hátign konungurinn beðið mig að bera Alþingi konunglega kveðju sína, og væntir hann þess, að sjer og hennar hátign drotningunni auðnist að heimsækja Ísland á þessu ári.

Að svo mæltu er Alþingi sett.

Þá stóð upp Sigurður Stefánsson, þm.

N.-Ísf., og mælti:

Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn tíundi!

og tóku þingmenn undir það með níföldu húrrahrópi.