14.03.1921
Neðri deild: 22. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í B-deild Alþingistíðinda. (201)

34. mál, landsreikningar 1918 og 1919

Fjármálaráðherra (M.G.):

Jeg hefi engu að svara háttv. frsm. (Sv. Ó.). enda leggur nefndin til, að frv. verði samþykt óbreytt. Háttv. frsm. (Sv. Ó.) nefndi 22. gr., en hefir sennilega átt við 19. gr., sem er um óviss útgjöld; það hefir líklega verið mismæli. Það er rjett, að sá útgjaldaliður hefir aukist og farið mjög fram úr áætlun. Nú var það sjerstaklega eignarnámið á ull, sem hækkaði lið þennan um 130 þús. kr., en það fje er nú alt endurgreitt, og má í raun og veru draga það frá. Auk þessa liðs eru ýmsir aðrir stórir liðir, sem ekki varð komist hjá, t. d. sendinefnd til London út af síldarsölu, vera Björns Sigurðssonar þar, kostnaður af Tjörnesnámunni o. fl.