18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1925 í B-deild Alþingistíðinda. (2065)

94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum

Jón Þorláksson:

Það sýnir röksemdafátækt háttv. frsm. (J. B.), er hann grípur til þess að halda því fram, að ef þetta atriði hefði verið fært í tal við útgerðarmenn, hefði það verið viðurkenning á því, að þeir ættu alla 168 tíma vikunnar. Hásetar eiga vitanlega alla tímana meðan þeir eru óráðnir, en þegar þeir ráða sig, verða þeir að semja um, hvað þeir skilja undan og hvað ekki. Þetta er því hreint og beint samningsatriði háseta og útgerðarmanna.

Háttv. þm. Ak. (M. K.) kom með eina mótbáru, sem í fljótu bragði virðist ekki fjarri lagi, og jeg hafði búist við að heyra fyr. Hann bar það fram, að skipstjóri, en ekki útgerðarmaður, væri hjer málsaðili. Þetta væri rjett, ef skipstjórar ættu skipin eða hefðu full yfirráð þeirra, en svo er ekki. Útgerðarmenn geta altaf sett þeim stólinn fyrir dyrnar og sagt þeim, hve mikils þeir eiga að krefjast af hásetum. Og það er eðlilegt, að útgerðarmenn geri þetta, því að það er þeirra hagur, að skipið afli vel. Þeir eru því í raun rjettri málsaðili.