18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1933 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Þorleifur Guðmundsson:
Af því að menn eru nú farnir að gera grein fyrir atkv. sínu, þá þykir mjer hlýða að gera það líka, enda þó að þess ætti ekki að þurfa, þar sem jeg er einn af þeim mönnum, sem hefi skrifað undir meiri hl. álitið. En af því að það hefir komið fram í ræðu, að sumir okkar muni hafa skrifað undir að óhugsuðu máli, þá vil jeg gera grein fyrir minni undirskrift.
Það, sem fjekk mig sjerstaklega til þess að fylgja þessu frv., var það, að jeg áleit að löggjafarvaldið ætti að vernda alþýðuna fyrir því, að henni væri ekki ofboðið og hún ofþjökuð með rjettlausri vinnuhörku.
Hjer getur ekki verið um neitt samningsatriði að ræða á milli hásetanna og útgerðarmannanna, því útgerðarmenn eru ekki færir um að halda þá samninga. Það eru skipstjórarnir, sem geta það; þeir eiga heima á sínu skipi og ráða þar, en ekki útgerðarmennirnir, sem eru altaf í landi.
Og þetta ákvæði, þótt lögskipað sje, getur á engan hátt dregið úr aflanum á botnvörpungunum. Jeg er sjálfur sjómaður og get úr flokki talað um þetta mál, alveg eins og hinir sjómennirnir hjerna í háttv. deild, og jeg hefi unnið meira óþreyttur og heill heilsu en sem svarar þessum hluta. Það getur verið, að jeg sje ónýtari til vinnu heldur en aðrir, en það verður hver að dæma eftir sjálfs sín reynslu, og lengra er ekki hægt að fara.
Jeg held, þó að háttv. frsm. minni hl. (P. O.) lofi mikið visku Englendinga á þessu sviði, þá sje engin ástæða til að fara að dæmum þeirra. Mjer er kunnugt um, og ykkur víst líka, að á allri leiðinni frá Reykjanesi og austur í Hornafjörð hefir fjöldi enskra botnvörpunga strandað, og það stundum í besta veðri. Þeir hafa stundum siglt beint á land, og hver hefir svo verið orsökin? Jú, hún hefir alloftast verið sú, að sá, sem við stýrið stóð, sofnaði á „vaktinni“ af ofþreytu, og ljet svo skeika að sköpuðu. Þó að þetta hafi enn ekki komið fyrir hjá okkur, er síst fyrir það að synja, að það geti komið fyrir. Þess vegna er að fyrirbyggja það í tíma.
Jeg hefi líka vitað og sjeð háseta á skipum, sem hafa verið að farast, komast í báta, til þess að bjarga sjer til lands. En voru þó þá svo þreyttir, að þeir gátu eigi haldið á árunum, og hvolfdi því undir þeim.
Og er þeir, sem komust lífs af, voru spurðir, hvers vegna þeir hefðu ekki getað dregið undan öldunum, var svarið á eina leið: Mennirnir voru svo þreyttir og þjakaðir af svefnleysi og vinnu, að þeir gátu eigi haldið á árunum, og urðu því hafinu að bráð.
Jeg býst við, að ekki þýði að gera frekari grein fyrir máli þessu, því að þeir nefndarmenn, sem mjer eru sammála, hafa gert það rækilega. Enda hefi jeg orðið þess var í þessari háttv. deild, að ekkert þýðir að halda langar ræður, því að jeg hefi setið hjer undir mörgum langlokum, sem ekki virðast hafa haft hin minstu áhrif á atkvæði nokkurs manns, enda munu flestir þingmenn ákveðnir í því hvernig þeir greiði atkvæði í þessu máli sem öðrum. Jeg álít þó, að það sje heilög skylda þm. að taka sjálfsagðar og skynsamlegar kröfur alþýðunnar til greina, því á henni veltur um framtíð þessa lands og á henni byggist raunverulegt sjálfstæði landsins.