29.04.1921
Neðri deild: 58. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1938 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):
Jeg hafði búist við því, að háttv. flm. brtt. tækju hjer fyrst til máls. En þeir muni kannske líta svo á, sem þeir hafi flutt fullgildar ástæður við 2. umr. málsins. Og jafnvel þótt jeg hafi í rauninni fyllilega andmælt þeim ástæðum, þá vil jeg enn gera um málið nokkrar athugasemdir, þar sem mjer virðist í afstöðu þessara háttv. þm. (J. A. J. og H. K.) kenna svo einkennilegrar hálfvelgju, að hún sje málinu í sjálfu sjer hættulegri og óþarfari en hitt, þó þeir hefðu verið því algerlega andvígir. Þessi hálfvelgja er reyndar orðin allalgeng hjer í þinginu, en hún er ekki betri í þessu máli fyrir það.
Annars hjelt jeg, að háttv. flutningsmenn brtt. hefðu verið búnir að friða samvisku sína, með því að drepa við 2. umr. hina sauðmeinlausu 2. gr. frv. En brtt. þeirra sýna, að svo er ekki.
Yfirleitt eru rök háttvirtra flutningsmanna yfirborðsástæður og annað ekki, sem sje, að vökuskiftingin geti komið sjer óhæfilega illa á ísfiski. Kunnugir menn hafa þó sagt mjer, að einmitt sá tími, sem þar er um að ræða, sje oft einn allra erfiðasti veiðitíminn, jafnvel verri en vökurnar á vetrarvertíðinni. Þá er t. d. oft áta í fiskinum, sem skemmir hendur sjómannanna. Þá er líka ofsögum af því sagt hjá háttv. flutningsmönnum, að á þessum veiðum fari botnvörpungarnir jafnaðarlega inn að kvöldi og geri að afla sínum. Þetta kemur að vísu oft fyrir á útlendum togurum við Vesturland, og það mun hafa vilt þá; en íslenskir togarar gera það mjög sjaldan. Sjómaður, sem verið hefir 7 ár á íslenskum togara, hefir t. d. sagt mjer, að allan þann tíma hafi skip það, er hann var á, aðeins einu sinni farið þannig inn á höfn, til þess að gera þar að fiski, en þá voru þeir með 70 körfur á þilfari og aðeins tvo menn uppi standandi.
Þar sem vertíðin hjá togurunum hjer sunnanlands byrjar jafnvel stundum fyrst í febrúarmánuði, er það bersýnilegt, að þörf er á lögunum, einmitt þá, kannske frekar en í mars, því þá eru frostin meiri og því erfiðari miklar vökur.
En eftir brtt. á takmörkunin á vinnutímanum á togurunum að byrja 1. mars, og kemur því ekki einu sinni að haldi alla vetrarvertíðina.
Það er því augljóst, að þessi undantekningartími er tekinn alveg af handahófi, og brtt. því ekki til neins nema spillis á málinu. Leyfi jeg mjer því að skora á alla þá háttv. þingmenn, sem máli þessu vilja vel, að greiða atkv. á móti brtt., og ber jeg svo mikið traust til sanngirni hv. deildar, að hún unni enn hásetunum þessa sjálfsagða, sanngjarna rjettar, afdráttar og hálfvelgjulaust.