07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Frsm. (Karl Einarsson):
Jeg mun ekki lengja umr. mikið. Jeg vil taka það fram viðvíkjandi því, sem háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) sagði um brtt. nefndarinnar, að fyrri hluti hennar skoða jeg, að sje hásetunum í vil. (S. E. : Jeg felst á það). Hún verður að skoðast sem verndargrein, en ekki sem hefting á frelsi þeirra. Um seinni part brtt. tók jeg fram í fyrri ræðu minni, að nefndin hefði sett hana inn af því henni fyndist of langt gengið, væri hásetum beint bannað að vinna, þótt þeir vildu það sjálfir. Þessi ákvæði eru einnig sett í þeirra þágu, því vitanlega er þeim sjálfum hagur í að vinna sem lengst, þegar svo stendur á, að nægur er fiskur og þeir eru færir að vinna. Hvort þeim yrði sjerstaklega borgað, sem ynnu slíka aukavinnu, yrði auðvitað að verða eftir samkomulagi. En ekkert er jeg hræddur um, að þetta gæti valdið ósamþykki milli hásetanna innbyrðis. Viðvíkjandi því, sem háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) talaði um, að hásetum væri misboðið með vökum, þá er mjer það ekkert nýtt. Jeg þekki margar sögur upp á það, en datt ekki í hug að segja þær hjer; háttv. deildarmönnum eru þær kunnar eins og mjer. Og það er ekki eingöngu á togurunum, sem slíkt kemur fyrir, heldur einnig á smærri skipunum, mótorbátum og jafnvel róðrarbátum. — Nefndin heldur fast við brtt. sínar, og hyggur heppilegast að samþ. frv. með þeim brtt.
Eftir því, sem þetta er í fastari skorðum og betri reglur eru settar um þetta, því betra. Eins og jeg tók fram áðan og lýsti yfir, að sumir nefndarmennirnir líta svo á, að skoðun útgerðarmanna sje svo að breytast, að þeir misbjóði nú ekki lengur hásetum, þá er þörfin auðvitað minni nú en áður á svona ákvæðum; enda er það líka mjög svo skiljanlegt, því hvaða gagn er að því, að láta menn, sem vakað hafa 50–70 klukkustundir, hanga hálfsofandi og úrvinda af þreytu yfir vinnunni? En ef háttv. deild vill ekki leyfa háseta að vinna lengur en 18 tíma í einu, þá ber auðvitað að fella brtt. En jeg álít það ekki rjett, vegna þess, að svo getur staðið á, að mikið sje í húfi, en vinnukraft háseta þarf alls ekki að misbrúka fyrir það, enda er sú skoðun altaf að breytast, eins og háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) tók fram. En því aðeins gengur veiðin vel, að menn sjeu óþreyttir að vinnu.