11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (2092)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Jakob Möller:
Jeg hefi eiginlega ekki miklu að svara háttv. samþm. mínum (J. B.). Þar sem hann gat ekki hugsað sjer aðra rannsóknaraðferð í þessu máli en að hæstv. ráðherrar færu til sjós, þá þykir mjer hann vera orðinn óþarflega skilningssljór. Því að vitanlega má vel rannsaka málið á annan hátt. Og ekki geri jeg ráð fyrir því, að háttv. flm. (J. B.) hafi „farið til sjós“ til að rannsaka það.
Háttv. þm. (J. B.) gat nú þess, að 2 skip hefðu verið gerð út, þar sem hásetar hefðu haft þennan ákveðna hvíldartíma, og að þau hefðu aflað einna best á vertíðinni, og því er haldið fram, að eins mætti það vera á öðrum skipum. Þetta eru staðhæfingar einstakra manna. En nú þarf með rannsókn að leiða í ljós, að þessar staðhæfingar sjeu rjettar. Komi það í ljós við rannsókn, þá skal ekki standa á mjer að greiða atkvæði með hvíldartímanum.
Háttv. flm. (J. B.) hefði vel átt að geta lagt fram skjöl og skilríki fyrir þessu frá þeim skipstjórum, sem láta háseta sína fá nóga hvíld á hverjum sólarhring, bæði um það, að þeim gefist það vel, og eins um hitt, að eins megi fara að á öðrum skipum, þó minni sjeu. — Ef háttv. flm. (J. B.) hefði hugsað fyrir því, að afla slíkra upplýsinga, og getað lagt þær fram, þá geri jeg ráð fyrir því, að mál þetta hefði ekki átt örðugt uppdráttar. En nú er málið í raun og veru alveg óupplýst, jafnvel líka um það, að hásetum sje ofþjakað með vökum á togurunum yfirleitt. Nú er jeg þeirrar skoðunar, að þetta ætti helst af öllu að vera samningsmál milli háseta og útgerðarmanna. En geti það ekki orðið, þá er auðvitað nauðsyn á einhverri lagasetningu í þessa átt, ef hásetum er ofboðið með vökum. En það þarf þá fyrst að leiða í ljós.
Jeg hefi talað við ýmsa háseta, og þeir segja, að enga nauðsyn beri til að setja slík lög. Jeg get að vísu ekki tekið þá umsögn fullgilda, því að það má gera ráð fyrir því, að áhugamenn ætli sjer oft og einatt ekki af.
Finn jeg ekki ástæðu til að orðlengja meira um þetta, en mun afhenda forseta rökstudda dagskrá, um að vísa málinu frá til frekari rannsóknar og undirbúnings undir næsta þing.