11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (2095)

94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum

Forseti (B. Sv.):

Mjer hefir borist svofeld rökstudd dagskrá, frá háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) :

„Með því að þingdeildin lítur svo á, að mál þetta hafi ekki verið rannsakað sem skyldi, telur hún ekki rjett að afgreiða það, að svo stöddu, sem lög frá þinginu, en vœntir þess, að stjórnin rannsaki það til nœsta þings, og geri þá þær till. um málið, sem hún telur þurfa, og tekur deildin því fyrir næsta mál á dagskrá.