11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Jakob Möller:
Það eru aðeins nokkur orð, út af ummælum háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.). Þau ummæli voru svo góð sönnun þess, hvernig málið hefir verið flutt. Hann sagði, að oft hefði verið unnið svo lengi á togurunum, að enginn hefði staðið uppi, en allir verið fallnir í valinn af ofþreytu og svefnleysi, en samt þurfa allir að vera við vinnuna, ef hún á að geta haldið áfram, því að mannaflinn er ekki meiri en það. Mjer þykir nú sennilegra, að svo fari, að einn og einn maður falli í valinn í senn, heldur en að allir falli í einu eins og skotnir. Sýnir þetta best, hvernig málið er flutt og hverjar öfgarnar eru.
Mjer kemur ekki til hugar að neita því, að vinnan muni stundum geta verið of mikil, en það er full þörf á að rannsaka það, og þá rannsókn á að fela óhlutdrægum mönnum, sem þekkingu hafa á málinu, en ekki fara eftir órökstuddum fullyrðingum einhverra manna í landi, sem ekkert þekkja af eigin reynd til vinnubragðanna á skipunum.
Vænti jeg fastlega, að ef dagskráin verður samþykt, þá láti stjórnin ekki rannsóknina undir höfuð leggjast. Vil jeg jafnframt benda háttv. deild á, að ekki mun hundrað í hættunni, þó að máli þessu verði frestað til næsta þings, því að vertíð er nú senn á enda, og óvíst, hvort fært verður að halda togurunum úti næstu vertíð. Auk þessa eru lögin þá yfirvofandi, og því líklegt, að skipstjórar færu varlegar í að ofþjaka mönnum sínum með vökum þess vegna.