07.03.1921
Neðri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1958 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

54. mál, sala á prestsmötu

Frsm. (Pjetur Ottesen):

Það er óþarfi að orðlengja mikið um þetta mál. Það hefir, eins og kunnugt er, verið hjer á ferðinni áður, og er því gamall kunningi þingsins.

Hinn sögulegi uppruni prestsmötunnar er sá, að menn, sem áður hjeldu presta á búum sínum, unnu það til, til þess að losna við að framfæra prestinn, að gjalda honum hálfar kúgildaleigur af jörð sinni til framfæris sjer, og festist kvöð þessi þannig við jarðirnar og hefir fylgt þeim síðan.

Nú líta margir svo á, og það með rjettu, að sú breyting hafi orðið á þessu á síðari tímum, svo að grundvöllur þessarar prestsmötukvaðan sje horfin með öllu; má benda þar á brauðasamsteypuna og fleiri breytingar, sem rýra not safnaðanna af prestunum, svo það væri í rauninni á fullri sanngirni bygt, þó kvöð þessi væri afnumin með öllu, án þess nokkurt endurgjald kæmi fyrir frá hendi þeirra, er kvöðin hvílir á. Auk þess hefir smjörverðið, einkum nú síðustu árin, orðið svo hátt, að það stendur engan veginn í hlutfalli við þann höfuðstól, sem af er goldið. Þess vegna er síst að furða, þó að menn vilji kosta kapps um að leysa sig undan þessari kvöð, svo óeðlileg og þvingandi sem hún er.

Samskonar kvöð, eða líkri, Maríu- og Pjeturslömbunum í Múlaþingi, var ljett af með lögum árið 1911, og án þess nokkurt gjald kæmi fyrir. Virðist því öll sanngirni mæla með, að prestsmatan fari sömu leiðina.

Við, sem þetta frv. flytjum, hefðum viljað ganga lengra en frv. fer fram á. En á þinginu 1919 varð það að samkomulagi í nefnd þeirri, er hafði málið til meðferðar, að fara ekki lengra, sökum þess að örvænt þótti um, að samkomulag fengist um frekari ívilnun.

Það er einkum í þrem atriðum, sem frv. þetta breytir frá því fyrirkomulagi, sem nú er um sölu á prestsmötu.

Í fyrsta lagi, að mönnum er með frv. trygt að fá prestsmöturnar keyptar, en dæmi eru fyrir því, að stjórnarráðið hafi synjað um sölu á prestsmötu, að minsta kosti var það svo 1917.

Í öðru lagi, að nú er gert ráð fyrir því, að 5% verði lagðir til grundvallar, þegar verð prestsmötunnar er reiknað út, en nú mun það vera 41/2%. Og auk þess sje verðið miðað við 12 ára verðlagsskrárverð í þeirri sýslu, er kaupbeiðandi á heima í, en nú er verðinu jafnað niður á 10 ár.

Í þriðja lagi er mönnum veittur gjaldfrestur í líkingu við það, sem er um sölu á kirkjujörðum, en nú verða menn að svara höfuðstólnum öllum í einu lagi.

Og í fjórða lagi er ráðherra heimilt að veita eiganda prestsmötujarðar ívilnun á prestsmötugjaldi, ef hann getur sannað, að jörðin hafi til langframa spilst eða úr sjer gengið af náttúrunnar völdum, eins og líka hitt, að taka tillit til þess, hafi kúgildi fallið án þess ábúanda væri um að kenna, eins og háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) benti á í ræðu um þetta mál á þinginu 1919, að átt hefði sjer stað í Ögri í Norður-Ísafjarðarprófastsdæmi.

Jeg vona svo, að háttv. deild geti fallist á frv. þetta og lofi því að ná fram að ganga.