04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2127)
112. mál, fiskimat
Frsm. (Einar Þorgilsson):
Jeg vil geta þess fyrir mína hönd, því hvernig nefndin kann að líta á þetta, get jeg eigi sagt, að jeg lít svo á, að það mundi í engu spilla, að brtt. verði samþykt, þótt jeg hins vegar telji þess enga eða litla þörf, því að mjer sýnist svo, sem það felist í sjálfri frv.gr., auk þess sem jeg tók það fram í framsöguræðu minni, að ekki væri ætlast til, að annar fiskur yrði metinn en sá, sem verkaður er og ætlaður til útflutnings.
Hins vegar er það satt, að þetta er engu óljósara orðað í brtt., og mun tæpast vera jafnskýrt að orði kveðið í frv.gr., að matið nái eigi nema til þess fiskjar, sem ætlaður er til útflutnings.
Um álit samnefndarmanna minna um þetta get jeg ekkert sagt.