04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1968 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)
112. mál, fiskimat
2130Frsm. (Einar Þorgilsson):
Jeg ætlaði mjer eigi að mæla með brtt. háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), en hins vegar fæ jeg eigi betur sjeð en að hún feli í sjer sömu meiningu og brtt. okkar. Er að vísu sagt í brtt. háttv. þm. (Sv. Ó.) fiskur, „sem verkaður er í landinu“, en í frv.gr., „sem ætlaður er til verkunar“. En þrátt fyrir þennan orðamun sýnist mjer engin efnisbreyting. heldur sje hjer aðeins skýrar kveðið á í brtt. háttv. þm. (Sv. Ó.) en í frv.gr.
Háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) vildi einungis meta fisk, sem fara ætti til Spánar eða Ítalíu. En það er eigi gott að segja fyrir, hvert fiskurinn muni fara, og er því ilt að varna mönnum að búa fiskinn sem best undir í upphafi, enda var það tilgangur sjútvn., að allur fiskur yrði metinn, sem ætlaður er til útflutnings, hvort sem hann á að fara til Spánar, Ítalíu eða annara landa.
Annars var það tilgangur sjútvn., að fiskurinn yrði sem best undir búinn í saltið og vönduð yrði öll meðferð á saltfiskinum. Hefir brytt á því upp á síðkastið, eins og jeg tók ljóst fram í framsöguræðu minni, að vegna breyttra staðhátta hefir fiskurinn ekki verið jafngóður sem hann var áður, og vegna þessa er brtt. okkar fram komin, til þess að ráða bót á þessu, ef verða mætti, og fæ jeg eigi sjeð, að brtt. háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) breyti í neinu þessari hugmynd og orðum sjútvn., sem fólst í brtt. frv.gr. við 1. gr. fiskimatslaganna. Það, sem vakir fyrir háttv. flm. brtt. (Sv. Ó.), er, að ekki verði metinn sá fiskur, sem ekki er ætlaður til útflutnings, og sýnist mjer, að þetta sje öllu skýrara orðað í brtt. hans en okkar. Get jeg því samþykt brtt. háttv. þm. (Sv. Ó.), án þess jeg líti svo á, að hún breyti frumhugsun frv.gr. í nokkru.