04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1969 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)
112. mál, fiskimat
Sveinn Ólafsson:
Aðaltilgangur minn með brtt. á þskj. 482 var að gera frv.gr. svo skýra, að ekki yrði um vilst, hvað hún ætti við. Háttv. stuðningsmenn hafa látið þá skoðun í ljós, að ekki sje ætlast til, að fiskur, sem er verkaður innanlands og á að ganga kaupum og sölum til neyslu í landinu, sæti sömu meðferð og útflutningsfiskur. Einmitt þetta er gert ljósara í brtt. minni heldur en í frv.gr., og þess vegna er brtt. fram komin. Í öðru lagi hefi jeg leitast við að færa frv.gr. til betra máls, en þess var ekki vanþörf, því að höfuðsetningin er þar slitin sundur með feiknalangri aukasetningu, og kemur niðurlag höfuðsetningarinnar svo eins og skolli úr sauðarlegg, og löngu síðar. Brtt. er því að þessu leyti aðeins til málfegrunar og efnisskýringar.
Háttv. þm. Borgf. (P. O.) og háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) sögðu báðir, að breytingin á fiskimatslögunum næði ekki tilgangi sínum, ef brtt. mín yrði samþ. Jeg get ekki skilið þessi ummæli háttv. þm., því í brtt. er alt tekið upp, sem felst í frv.gr. Munurinn er aðeins sá, að brtt. tekur það skýrara fram og í færri orðum. Jeg fullyrði þess vegna, að misskilningurinn er hjá þeim, en ekki hjá mjer.