04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1970 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)
112. mál, fiskimat
Magnús Kristjánsson:
Það þykir kannske undarlegt, að jeg skuli ekki vera ánægður með frv., eins og það liggur fyrir. Jeg lýsti því að vísu nokkuð á fundum háttv. sjútvn., en hefi ekki látið þess getið í sjerstöku nál.
Ástæðan til þessarar skoðunar minnar er sú, að jeg held, að ef frv. þetta yrði að lögum, þá yrði það tómur lagabókstafur, því það er ómögulegt að framkvæma það eins og gert er ráð fyrir. Þessi vara gengur sem sje kaupum og sölum í svo smáum stíl, að ógerningur verður að eltast við það. Annaðhvort verður þá farið í kring um lögin, svo þau koma ekki að hálfum notum, eða matsmennirnir verða settir í slíkan vanda, að matið yrði óhæfilega dýrt, ef það yrði framkvæmt eftir ákvæðum laganna.
Jeg neita því ekki, að það er tilgangur háttv. samnefndarmanna minna með frv. að bæta verkun á fiski, en sá tilgangur næst ekki með frv., af því það er óframkvæmanlegt, eins og jeg hefi áður bent á. Jeg mun greiða atkvæði með brtt. á þskj. 482, því hún er betur löguð eftir kringumstæðum.
Frv. getur komið að einhverju gagni þar, sem um stærri sölu er að ræða. En við fisk, sem gengur kaupum og sölum í smáum stíl milli manna, þá er ómögulegt að framkvæma það.