14.05.1921
Efri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1979 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)
130. mál, veiting ríkisborgararéttar
Forsætisráðherra (J. M.):
Það er rjett, sem háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) sagði, að gæta verði þess, að hafa allar skýrslur fyrir hendi, þegar veita á ríkisborgararjett, því að það eru hin dýrmætustu rjettindi, sem nokkur þjóð hefir í tje að láta, og er því varlega að því farandi.
Jeg beindi því til nefndarinnar við þetta tækifæri, að athuga, hvaða reglur nefndin ætlaðist til, að hafðar yrðu, þegar veita ætti ríkisborgararjett, og get jeg fallist á það, að rjett væri að taka upp þá reglu, að ávalt sje tillaga um veiting ríkisborgararjettar tekin upp í stjórnarfrumvarpi, og beiðni um það skuli fram komin fyrir ákveðinn dag í hvert sinn.