19.04.1921
Efri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)

105. mál, einkasala á áfengi

Frsm. (Halldór Steinsson):

Eins og jeg tók fram við 1. umr., þá eru þrír aðalkostir við þetta frv. í fyrsta lagi ætti eftirlit með lyfjabúðum að verða betra eftirleiðis en hingað til. Í öðru lagi ætti að fást með þessu meiri trygging fyrir hæfilegri úthlutun á áfengi því, sem flutt er til landsins, og í þriðja lagi ætti þetta að geta orðið talsverður tekjuauki fyrir ríkissjóð.

Allir verða að viðurkenna það, bæði bannmenn og andbanningar, að bannlögin hafa verið óhæfilega mikið brotin. Aðalbrotin liggja í innflutningi á því áfengi, sem ekki er samkvæmt lögunum heimilt að flytja inn í landið. Jeg býst nú við, að aldrei verði hægt að sporna við þessu til fulls í svo strjálbygðu landi, og það má enginn ætlast til, að þessi brot hverfi úr sögunni alt í einu. Til þess þyrfti öflugri tollgæslu en við höfum ráð á. Heldur verður það smátt og smátt, eftir því, sem hugsunarháttur landsmanna breytist í þessum efnum.

En það eru til önnur brot á áfengislögunum en þessi, sem jeg hefi nú nefnt, og það eru brotin á meðferð þess áfengis, sem leyft er að flytja inn í landið.

Jeg er sannfærður um, að það er flutt inn langtum meira af áfengi til iðnaðar en nauðsyn krefur, svo og brensluspíritus, hárvötnum og kryddvökvnm, sem ganga hjer kaupum og sölum. Auk þess býst jeg við, að áfengi til lyfja sje líka óþarflega mikið.

Annars eru misjafnar skoðanir lækna á því, hve mikið áfengi þurfi til lyfja. Ætla sumir jafnvel, að því sje með öllu ofaukið. Jeg skal nú ekki leggja neinn dóm á það, hverjir rjett muni hafa fyrir sjer, en þó þykir mjer líklegast, að meðalvegurinn verði þar næst sanni, og óhætt sje að minsta kosti að minka eitthvað áfengi það, sem notað er til lyfja.

Það virðist einsætt, að þetta frv. eigi að geta dregið úr brotum þeim, sem snerta áfengi það, sem leyft er að flytja inn, hvað sem hitt snertir, en það horfir óneitanlega talsvert til bóta, ef svo getur orðið.

Í 1. gr. er tekið fram, að alt áfengi eigi að ganga í gegnum eins manns hendur. Þetta er að vísu gott, en þó ekki einhlítt, ef ekki væri gert ráð fyrir að takmarka innflutninginn. Það er einmitt gert með 2. gr. Þar er það tekið fram, að stjórnin setji nánari reglur um áfengissöluna, og er þar átt við áfengi til iðnaðar, brensluspíritus og fleira. — Með áfengi til lyfja verður farið samkvæmt reglugerð, sem stjórnin setur þar að lútandi með ráði landlæknis.

Þetta frv. ætti að geta dregið talsvert úr eyðslu áfengis í landinu. ef reglum þessum verður vel fyrir komið og ekki beitt með neinu ofstæki, hvorki með eða móti banni, heldur af sanngirni og einbeittni.

Fram hafa komið 2 brtt. við frv. þetta frá háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.). Önnur á við 2. gr. frv. og fer fram á, að í reglugerð stjórnarinnar sje það tekið fram, hve mikið áfengi megi láta af hendi við lækna og lyfsala, svo mest sje á ári hverju. Nefndin er vitanlega samþykk þessu, því það var einmitt þetta, sem hún ætlaðist til, að stjórnin tæki fram í reglugerð sinni.

En það er öðru máli að gegna með 2. brtt. Hún á við 7. gr. frv. og fer fram á það, að álagningin hækki. Þetta vill nefndin ekki ganga inn á. Þessi hækkun myndi aðallega koma niður á suðuvökvum, og þó að þeim hafi oft verið varið öðruvísi en skyldi, þá mun þó meiri hlutinn hafa verið notaður til eldunar og hita. Þetta hlyti því að verða mörgum tilfinnanlegur skattur og koma mest niður á fátækasta fólkinu, sem notar einna mest slík suðu- og hitunaráhöld. Nefndinni finst, að það hafi þegar í frv. verið gerð nóg álagning, og er því algerlega mótfallin þessari brtt.

Aftur á móti var nefndin ekki öll sammála, að því er álagning á áfengi til lyfja snertir, en þó var meiri hl. á móti henni. Jeg tel það æskilegt, að hv. þm. (S. H. K.) vildi taka þessa síðari gr. aftur og breyta henni.

Hvað snertir brtt. háttv. þm. G.-K. (B. K.), sem á við brtt. hv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.), þá skal jeg geta þess, að nefndin leit svo á, að hægt væri að koma þessu ákvæði um dýralækna inn í reglugerð stjórnarinnar, ásamt fleiru, sem ekki verður tekið fram í lögunum. Þó er nefndin alls ekki mótfallin því, að þetta sje tekið fram í lögunum. Hvað snertir aftur á móti brtt. við 2. lið, þá getur nefndin ekki fallist á hana. Verði annars brtt. háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) tekin aftur, þá verður þessi brtt. það að sjálfsögðu líka.

Að síðustu skal jeg taka það fram, að nefndin getur sætt sig við brtt. á þskj. 327, að það sje einnig tekið fram, að endurskoðendur fari líka í gegn um allan rekstur verslunarinnar.

Svo man jeg ekki eftir, að jeg hafi þurft að segja meira um þetta efni að svo stöddu.