19.04.1921
Efri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2022 í B-deild Alþingistíðinda. (2216)
105. mál, einkasala á áfengi
Björn. Kristjánsson:
Jeg get orðið mjög fáorður um þessa brtt. mína, úr því að till. á þskj. 318 er tekin aftur. Þó get jeg ekki staðist að fara um hana örfáum orðum, vegna misskilnings, sem mjer virðist hafa komið fram hjá háttv. þm. Snæf. (H. St.).
Samkvæmt frv. á að leggja 25–75% á vínið, miðað við verð þess, komins í hús, að meðtöldum tolli. En samkvæmt brtt. á að leggja á vöruna ótollaða, og þess vegna verður álagningin samkvæmt henni lægri. Er jeg ánægður með brtt. háttv. 2. þm. S.-M., (S. H. K.), þar sem hún vill láta miða álagninguna við það, að lagt sje á án tolls. Jeg er aftur á móti ekki ánægður með, að þar er gert ráð fyrir, eins og í frumvarpinu, að álagningin skuli miðast við verð þess, komins í hús. Það er venja allra kaupsýslumanna að leggja á innkaupsverð vörunnar, og mjer finst eðlilegast, að einkasöluverslanir ríkisins fylgi sömu reglum og allar aðrar verslanir.
Jeg hefi notað suðuspritt við efnarannsóknir, og veit því hvað það kostar nú.
Það kostar 6 kr. líterinn. Sú vara er því orðið altof dýr, og vildi jeg helst, að ekkert væri á hana lagt. Í öllu falli má það alls ekki vera meira en lagt er á lyfjaáfengi lækna. Þetta vona jeg, að verði athugað fyrir 3. umr.