19.04.1921
Efri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2027 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)

105. mál, einkasala á áfengi

Sigurður Eggerz:

Að því er snertir verndun þá, sem bannlögin eiga að fá með frv. þessu, þá vil jeg benda á, að í 4. gr. frv. er alls ekki gefið í skyn, að embættismaður sá, sem þar er gert ráð fyrir að skipaður verði, eigi að hafa eftirlit með bannlögunum. Ekki er honum heldur neinstaðar í frv. gefið vald til að ákveða, hvað mikið af vínanda megi veita til iðnaðar eða hvað mikið til lækna. Lögreglustjóri skipar fyrir um, hvað hann megi láta til iðnaðar, en landlæknir, hvað hann megi láta til lyfjabúða og lækna. Hann hefir þar ekkert vald, verður aðeins að hlýða yfirboðurum sínum, og er því að þessu leyti alveg eins settur og umsjónarmaður áfengiskaupa nú. Skipun þessa manns getur þess vegna engin áhrif haft á bannlögin. Það verður eftir sem áður algerlega komið undir stjórn landsins og lögregluvaldi, hvernig bannlaganna verður gætt. Eina ástæðan til að stofna embættið er eftirlitið með lyfjabúðunum. En að stofna sjerstakt embætti til þess að hafa eftirlit með þeim, álít jeg algerlega tilgangslaust.

Það gleður mig, að háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) skuli vera mjer samdóma í þessu atriði. — Og sje embættið algerlega óþarft, þá skil jeg ekki, hvernig deildin getur samþykt að stofna það.

Einkennilegt er og, að laun þessa nýja embættismanns skuli ekki vera ákveðin í frv., og væri ef til vill ekki ófyrirsynju, að Alþingi ákvæði þau, einkum þar sem því er fleygt, að þessum nýja embættismanni sjeu ætlaðar 20 þús. kr. í laun. Væri fróðlegt að heyra, hvort nokkur fótur væri fyrir því.