03.05.1921
Efri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2029 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)
105. mál, einkasala á áfengi
Frsm. (Halldór Steinsson):
Nefndin hefir gert tvær brtt. við frv. á þskj. 441. Fyrri brtt. er við 2. gr. og fer í þá átt, að tveir síðustu málsliðir falli burtu. Í þessari grein er ákveðið, að áfengi megi láta af hendi til lækna, dýralækna og lyfsala, og annara þeirra, er bannlög heimila, og ætlast til, að settar verði reglur um úthlutunina í samráði við landlækni
Nú er svo háttað um dýralæknana, að þeir eru á engan hátt háðir landlækni, og því ekki rjett, að landlæknir kveði á um, hve mikið skuli látið úti til þeirra.
Þess vegna telur nefndin betra að breyta þessu þannig, að ríkisstjórn geti einnig haft íhlutun um úthlutun áfengisins. Þar sem álitið er nauðsynlegt, að stjórnin leiti álits landlæknis, þegar um úthlutun til lækna er að ræða, þá telur nefndin, að stjórnin eigi ekki að gera það þegar um dýralæknana er að ræða, heldur beri henni að snúa sjer til dýralæknisins í Reykjavík.
Þá er brtt. við 4. gr., að auk þess sem læknar geti pantað lyf frá lyfsölustjóra, þá sje honum skylt að panta einnig lyf fyrir ríkisstjórnina, eftir beiðni hennar, Þetta getur sjerstaklega komið sjer vel, þegar um sóttvarnameðul er að ræða. Þau eru nú orðin stór útgjaldaliður, og það getur munað mörg þúsund krónum, hvar og hvernig lyf eru keypt inn. Þess vegna er sjálfsagt, að ríkisstjórnin geti pantað slík lyf gegnum lyfsölustjórann. Þá er það bóluefni, sem líka gæti komið til mála, að pantað yrði á þennan hátt. Það lyf er og mjög mikið notað, og ef farið verður að nota bóluefni við taugaveiki, eins og farið er að ræða um á síðustu tímum, þá er nauðsynlegt, að stjórnin geti pantað bóluefnið á sama hátt og t. d. sóttvarnameðulin.
Brtt. á þskj. 373 eru frá háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) og frá háttv. 2. þm. G.-K. (B. K.). Brtt. við 2. gr., a-liður, fer fram á, að síðasta málsgreinin falli niður. Er hún í samræmi við till. nefndarinnar, og hefir hún því að sjálfsögðu ekkert við hana að athuga. Síðari liðurinn er um, að suðuvökvi og iðnaðaráfengi skuli einnig sett undir yfirumsjón áfengisstjórans.
Hin brtt. er við 7. gr. og fer í þá átt að heimila að leggja á áfengi til lyfja 30%. Nefndin getur eigi fallist á þessa breytingu, og leggur til, að greinin verði samþ. eins og í frv. stendur, af þeirri ástæðu, að við teljum eigi rjett að skattleggja það áfengi, sem ætlað er til lyfja, fremur en önnur meðul eða lyfjaefni. Fleira hefi jeg svo ekki að segja um þetta mál.